Á morgun fimmtudaginn 1. júní verður verslun Líflands á Blönduósi 10 ára. Af því tilefni verður blásið til afmælisfögnuðar í versluninni frá kl. 16-18.
Boðið verður uppá afmælisköku, grillaðar pylsur og gos. Lifandi tónlist verður á svæðinu og happdrætti með glæsilegum vinningum eins og grilli frá Múrbúðinni, skrúfstykki frá K. Þorsteinssyni, inneignarkortum í verslun Líflands, fatnaði og öðrum aukavinningum.
Hlökkum til að sjá sem flesta!
Viðburður á Facebook
Lífland á Blönduósi 10 ára - Afmælisfögnuður