Nú hefur finnska Lehmän bætiefnalínan frá FinnCow í Finnlandi bæst í vöruflóru Líflands.
Um er að ræða þykknistúpur þróaðar af finnskum dýralæknum og framleiddar þar í landi.
Túpurnar innihalda bætiefni sem nýtast sem liður í inngripi þegar eitthvað fer aflaga í heilsufari, t.d. í tengslum við kalk- eða orkuskort við burð, graskrampa, súra vömb, lystarleysi, skitu o.fl.
Vörulínan er öll þróuð fyrir nautgripi en margar þeirra henta einnig sauðfé.
Lehmän túpurnar eru á hagstæðu verði og ekki spillir fyrir að túpurnar sjálfar henta í almennar kíttisgrindur/byssur og kalla ekki á sértækan búnað til skömmtunar.
Lehmän túpurnar verða á kynningartilboði vikuna 11.-16. janúar. Endilega kynnið ykkur vörurnar frá FinnCow!
Smelltu hér til að sjá meira um Lehmän vörulínuna í vefverslun okkar.