Karfan er tóm.
LÍF áburður
LÍF áburðurinn er tilbúinn áburður af háum gæðum framleiddur af Glasson Fertilizers í Bretlandi, samkvæmt evrópskum stöðlum. Glasson leggur mikið upp úr nýsköpun og vöruþróun og er markmið þeirra að bæta skilvirkni næringarupptöku og notkunar á áburði. Áburðurinn kemur í stórsekkjum sem hafa þykkan innri poka skv. BS EN ISO 9001-2000 staðli. Sekkirnir koma nú með meiri útlitsaðgreiningu og endurbættum merkingum sem einfaldar alla vinnu með vörurnar. Áburðurinn er allur húðaður með paraffínolíu sem eykur flæði og minnkar líkur á samloðun áburðarkornanna. Flestar áburðartegundirnar eru blandaðar og fjölkorna.
Gæði, gott úrval og samkeppnishæft verð hafa gert LÍF áburðinn að raunhæfum og hagkvæmum valkosti fyrir íslenska bændur síðan 2016.