Fara í efni
Vörunúmer: 66850

LÍF Kornað kalk 38%

Verðm/vsk
37.155 kr.

Kornað kalk er jarðvegsbætandi efni sem dregur úr sýringu jarðvegs, hækkar sýrustig (pH) og gerir jarðveginn basískari. Kornaða kalkið er unnið úr fínt möluðum kalksteini sem hefur skjótari verkun en skeljasandur sem leysist hægar upp. Hentar vel til viðhaldskölkunar á túnum. Of lágt sýrustig getur dregið verulega úr nýtingu áburðarefna. Hefur þann kost umfram skeljasand og magnesíumkalk að henta til dreifingar með venjulegum áburðardreifara. 

Vara er ekki til sölu

Þessi vara er ekki til sölu í vefverslun. Vinsamlegast hafið samband við sölumann í síma 540-1100 eða með tölvupósti á lifland@lifland.is
Verðm/vsk
37.155 kr.

Kornað kalk er jarðvegsbætandi efni sem dregur úr sýringu jarðvegs, hækkar sýrustig (pH) og gerir jarðveginn basískari. Kornaða kalkið er unnið úr fínt möluðum kalksteini sem hefur skjótari verkun en skeljasandur sem leysist hægar upp. Hentar vel til viðhaldskölkunar á túnum. Of lágt sýrustig getur dregið verulega úr nýtingu áburðarefna. Hefur þann kost umfram skeljasand og magnesíumkalk að henta til dreifingar með venjulegum áburðardreifara. 

Kölkun
Til að hámarka áburðarnýtingu plantna er ákjósanlegt að sýrustig jarðvegs sé um pH 5,8-6,6. Í samantekt frá RML fyrir niðurstöður jarðvegssýna 2014-2019 kemur fram að meðalsýrustig í íslensku ræktarlandi er um pH 5,4, lægst á Vesturlandi. Þetta gefur til kynna að víða hérlendis sé ræktarland of súrt.

Eins og sjá má á grafi hér neðar, nýtast næringarefni best innan ákveðinna sýrustigsmarka. Sýrustig ofan við pH 5,5-5,8 í lífrænum jarðvegi og pH 6,3-7,0 í ólífrænum jarðvegi eykur aðgengi helstu næringarefna. Írskar rannsóknir hafa sýnt fram á uppskeruauka um 1,0 t ÞE/ha eingöngu vegna leiðréttingar á sýrustigi úr pH 5,2 í pH 6,3.

Kostir kölkunar:
• Eykur árlegan grasvöxt
• Gerir allt að 80 kg N/ha aðgengileg á ári
• Eykur losun köfnunarefnis úr lífrænum hluta jarðvegs
• Eykur aðgengileika fosfórs (P) og kalí (K)
• Kalk er jarðvegsbætir sem stýrir sýrustigi jarðvegs með hlutleysingu sýra sem stafa frá köfnunarefnisgjöfum, mykju og úrkomu
• Kölkun bætir jarðvegsbyggingu og getur gert þéttan jarðveg gljúpari, stutt við bætt frárennsli og flýtt fyrir hlýnun jarðvegs að vori
• Ending fóðurgrasa og belgjurta (smára) eykst


Hámörkum nýtingu áburðarefna!
Áburður er einn af stærstu kostnaðarliðum í rekstri hvers bús og hámörkun nýtingar áburðarefna hefur því bein áhrif á afkomuna. Ef sýrustig túna er vanstillt getur kölkun haft í för með sér mikinn hagrænan ávinning. Kornað kalk frá Líflandi er kjörið til viðhalds á sýrustigi í ræktarlandi og má dreifa með venjulegum áburðardreifurum. Ef þörf er á miklum inngripum varðandi sýrustig jarðvegs er mælt með skeljasandi eða öðrum sambærilegum efnum. Lífland getur haft milligöngu um útvegun skeljasands sé þess óskað.

Notkunarleiðbeiningar og umfang notkunar

Almenn viðmið um notkun til að hækka sýrustig um 0,1 á pH kvarða: Sendinn, bergefnaríkur moldarjarðvegur: 60 kg/ha; sendinn/siltkenndur moldarjarðvegur: 100 kg/ha; leirkenndur moldarjarðvegur: 125 kg/ha; lífrænn jarðvegur 150 kg/ha. Leitið frekari ráðlegginga um notkun hjá Líflandi eða ráðunautaþjónustu.

Hvenær er best að kalka og hvað ber að forðast?

Áður en kalkað er er mikilvægt að mæla sýrustig jarðvegs og byggja ákvörðun um kölkun á niðurstöðum jarðvegsgreiningar og faglegum ráðleggingum.

  • Ekki er ráðlagt að dreifa mykju eða tilbúnum áburði skömmu fyrir eða eftir kölkun. Kalk hækkar sýrustig jarðvegsins tímabundið við yfirborð og getur það aukið líkur á útgufun niturs (N), sérstaklega þegar notaður er áburður sem inniheldur úrefni eða ammoníum sem nitur/köfnunarefnisgjafa. Þetta getur leitt til efnataps og minni nýtni áburðar.
  • Stærri kölkunaraðgerðir er því best að framkvæma að hausti eða á tímum þegar ekki stendur til að dreifa mykju eða áburði.
  • Ef nauðsynlegt er að kalka að vori skal láta að minnsta kosti tvær vikur líða milli kölkunar og áburðardreifingar til að draga úr hættu á niturtapi.

 

Leitaðu tilboða í LÍF áburð hjá söludeild Líflands eða í verslunum okkar í lifland@lifland.is eða s. 540-1100.

Innihaldsefni: Kalksteinn (CAS no. 1317-65-3)

Einkorna jarðvegsbætandi efni Ca 53,0

Kalsíum CaO (Ca) 53,0% (38,0%)

 

Geymsluskilyrði

Geymist undir þaki eða yfirbreiðslu á köldum og þurrum stað. Undirlag skal vera þurrt og hreint eða sekkir geymdir á vörubrettum.

Kornað kalk er afgreitt í 600 kg stórsekkjum.