Fara í efni
Vörunúmer: 66800

LÍF 27 - N áburður

Verðm/vsk
61.469 kr.

Eingildur, einkorna köfnunarefnisáburður sem hentar á eldri tún þar sem notast er við mikinn búfjáráburð fyrir fyrri slátt, en einnig einn og sér milli slátta. Gagnast einnig sem ábót á köfnunarefnisskammt fyrir grænfóður.

Vara er ekki til sölu

Þessi vara er ekki til sölu í vefverslun. Vinsamlegast hafið samband við sölumann í síma 540-1100 eða með tölvupósti á lifland@lifland.is
Verðm/vsk
61.469 kr.

Eingildur, einkorna köfnunarefnisáburður sem hentar á eldri tún þar sem notast er við mikinn búfjáráburð fyrir fyrri slátt, en einnig einn og sér milli slátta. Gagnast einnig sem ábót á köfnunarefnisskammt fyrir grænfóður.

Notkunarleiðbeiningar og umfang notkunar

Almenn viðmið um notkun: 370 kg/hektara m.v. N þörf túns í miðlungs rækt og 100 kg þörf N á hektara sem ekki hefur verið áborið með húsdýraáburði. Leitið frekari ráðlegginga um notkun hjá Líflandi eða ráðunautaþjónustu.

Ofangreindar magntölur eru hugsaðar sem viðmið. Mælt er með að gera áburðaráætlun með hliðsjón af jarðvegsgerð, ræktunarsögu, notkun viðbætts húsdýraáburðar, sýrustigi jarðvegs o.fl. til að forðast of- eða vannotkun áburðarefna.

Leitaðu tilboða í LÍF áburð hjá söludeild Líflands eða í verslunum okkar í lifland@lifland.is eða s. 540-1100. 

Innihaldsefni: ammóníumnítrat (CAS no. 6484-52-2), kalsíum magnesíumkarbónat (CAS no. 16389-88-1)

Einkorna N áburður 27 (6,0 – 3,0)  
Köfnunarefni alls (N) 27%
Köfnunarefni nítrat (N) 13,50%
Köfnunarefni ammoníum (N) 13,50%
Kalsíum CaO (Ca) 6,0% (4,3%)
Magnesíum MgO (Mg) 3,0% (1,8%)

 

Geymsluskilyrði

Geymist undir þaki eða yfirbreiðslu á köldum og þurrum stað. Undirlag skal vera þurrt og hreint eða sekkir geymdir á vörubrettum.

Áburðurinn er afgreiddur í 600 kg stórsekkjum.

Tengdar vörur