Karfan er tóm.
LÍF 24-5+SE+NutriCharge - NP áburður
Tvígildur, fjölkorna, selenbættur áburður sem hentar t.d. með búfjáráburði á eldri tún þar sem enginn skortur er á kalí og fosfórþörf er ekki mikil. Getur líka hentað sem millisláttaráburður þar sem vöntun er á fosfór. Fosfórinn er meðhöndlaður með NutriCharge sem eykur upptöku hans.
Vara er ekki til sölu
Tvígildur, fjölkorna, selenbættur áburður sem hentar t.d. með búfjáráburði á eldri tún þar sem enginn skortur er á kalí og fosfórþörf er ekki mikil. Getur líka hentað sem millisláttaráburður þar sem vöntun er á fosfór. Fosfórinn er meðhöndlaður með NutriCharge sem eykur upptöku hans.
NutriCharge minnkar fastbindingu fosfórs í jarðvegi og eykur aðgengileika hans fyrir nytjaplöntur. Þegar hefðbundnum fosfóráburði er dreift á ræktarland, og áburðurinn leysist, fastbinst stór hluti fosfórsins í jarðveginum öðrum frumefnum (t.d. Al⁺, Ca⁺ og Fe⁺) sem fyrir eru í jarðveginum. Fastbundinn fosfór er ekki aðgengilegur plöntunum. Ef NutriCharge er í áburðinum dregur það til sín sameindirnar sem annars myndu fastbindast fosfórnum og eykst þá framboð nýtanlegs fosfórs fyrir plönturnar. NutriCharge byggir á efnasambandi sem bindur jónir sem annars myndu fastbinda aðgengilegan fosfór. Í bandarískum rannsóknum hefur aðgengileiki fosfórs aukist um 30-40% yfir vaxtartímann með notkun NutriCharge. NutriCharge vörur okkar eru húðaðar með 2 lítrum/tonn fosfórgjafa í áburðinum. Meira um NutriCharge hér.
Notkunarleiðbeiningar og umfang notkunar
Almenn viðmið um notkun: 417 kg/hektara m.v. N þörf túns í miðlungs rækt og 100 kg þörf N á hektara sem ekki hefur verið áborið með húsdýraáburði. Leitið frekari ráðlegginga um notkun hjá Líflandi eða ráðunautaþjónustu.
Ofangreindar magntölur eru hugsaðar sem viðmið. Mælt er með að gera áburðaráætlun með hliðsjón af jarðvegsgerð, ræktunarsögu, notkun viðbætts húsdýraáburðar, sýrustigi jarðvegs o.fl. til að forðast of- eða vannotkun áburðarefna.
Leitaðu tilboða í LÍF áburð hjá söludeild Líflands eða í verslunum okkar í lifland@lifland.is eða s. 540-1100.
Innihaldsefni: Kalsíum ammóníumnítrat (CAS no. 6484-52-2), díammóníumfosfat (CAS no. 7783-28-0), natríumselenít (CAS no. 10102-18-8)
Húðunarefni: Díammóníumfosfatið í þessari blöndu er húðað með NutriCharge©. Hraði á losun næringarefna getur verið mismunandi eftir hitastigi. Aðlögun á áburðargjöf getur verið nauðsynleg. Dregið getur úr virkni húðuninnar eftir sex mánuði.
Fjölkorna NP áburður 24-5 (5,0 – 4,2 – 2,0 - 0,0020) með brennisteini, kalsíum, magnesíum og seleni
| Köfnunarefni alls (N) | 24,00% |
| Köfnunarefni nítrat (N) | 12,90% |
| Köfnunarefni ammoníum (N) | 11,10% |
| Fosfór P2O5 (P) ammóníumsítrat- og vatnsleysanlegur | 5,0% (2,2 %) |
| Fosfór P2O5 (P) vatnsleysanlegur | 4,5% (2,0%) |
| Brennisteinn SO3 (S) vatnsleysanlegur | 5,0% (2,0%) |
| Kalsíum CaO (Ca) | 4,2% (3,0%) |
| Magnesíum MgO (Mg) | 2,0% (1,2%) |
| Selen Se | 0,002% |
Geymsluskilyrði
Geymist undir þaki eða yfirbreiðslu á köldum og þurrum stað. Undirlag skal vera þurrt og hreint eða sekkir geymdir á vörubrettum.
Áburðurinn er afgreiddur í 600 kg stórsekkjum.