Karfan er tóm.
LÍF 19-8-12 - NPK áburður
Þrígildur, fjölkorna áburður sem hentar t.d. á mýrartún sem mælast með lágt kalí, en algengt er að tún um vestan- og norðanvert landið mælist lág í kalí. Án selens.
Vara er ekki til sölu
Þrígildur, fjölkorna áburður sem hentar t.d. á mýrartún sem mælast með lágt kalí, en algengt er að tún um vestan- og norðanvert landið mælist lág í kalí. Án selens.
Notkunarleiðbeiningar og umfang notkunar
Almenn viðmið um notkun: 526 kg/hektara m.v. N þörf túns í miðlungs rækt og 100 kg þörf N á hektara sem ekki hefur verið áborið með húsdýraáburði. Leitið frekari ráðlegginga um notkun hjá Líflandi eða ráðunautaþjónustu.
Ofangreindar magntölur eru hugsaðar sem viðmið. Mælt er með að gera áburðaráætlun með hliðsjón af jarðvegsgerð, ræktunarsögu, notkun viðbætts húsdýraáburðar, sýrustigi jarðvegs o.fl. til að forðast of- eða vannotkun áburðarefna.
Leitaðu tilboða í LÍF áburð hjá söludeild Líflands eða í verslunum okkar í lifland@lifland.is eða s. 540-1100.
Innihaldsefni: Kalsíum ammóníumsúlfat (CAS no. 6484-52-2), kalíumklóríð (CAS no. 7447-40-7), díammóníumfosfat (CAS no. 7783-28-0), ammóníumsúlfat (CAS no. 7783-20-2
Fjölkorna NPK áburður 19-8-12 (5,0-2,8-1,2) með brennisteini, kalsíum og magnesíum
| Köfnunarefni alls (N) | 19,0% |
| Köfnunarefni nítrat (N) | 8,8% |
| Köfnunarefni ammoníum (N) | 10,2% |
| Fosfór P2O5 (P) ammóníumsítrat- og vatnsleysanlegur | 8,0% (3,5 %) |
| Fosfór P2O5 (P) vatnsleysanlegur | 7,2% (3,2%) |
| Kalíum K2O (K) vatnsleysanlegur | 12,0% (10,0%) |
| Brennisteinn SO3 (S) vatnsleysanlegur | 5,0% (2,0%) |
| Kalsíum CaO (Ca) | 2,8% (2,0%) |
| Magnesíum MgO (Mg) | 1,2% (0,7%) |
Geymsluskilyrði
Geymist undir þaki eða yfirbreiðslu á köldum og þurrum stað. Undirlag skal vera þurrt og hreint eða sekkir geymdir á vörubrettum.
Áburðurinn er afgreiddur í 600 kg stórsekkjum.