Fara í efni
Vörunúmer: 66838

LÍF 25-9-9+Se - NPK áburður

Verðm/vsk
83.916 kr.

Þrígildur, köfnunarefnisríkur, fjölkorna, selenbættur alhliða áburður sem hentar t.d. á tún í miðlungs rækt, einkum þar sem fosfór og kalí er ekki af skornum skammti. Uppfyllir þarfir túngrasa og viðheldur jafnvægi á forða lykilnæringarefna.

Vara er ekki til sölu

Þessi vara er ekki til sölu í vefverslun. Vinsamlegast hafið samband við sölumann í síma 540-1100 eða með tölvupósti á lifland@lifland.is
Verðm/vsk
83.916 kr.

Þrígildur, köfnunarefnisríkur, fjölkorna, selenbættur alhliða áburður sem hentar t.d. á tún í miðlungs rækt, einkum þar sem fosfór og kalí er ekki af skornum skammti. Uppfyllir þarfir túngrasa og viðheldur jafnvægi á forða lykilnæringarefna.

Notkunarleiðbeiningar og umfang notkunar

Almenn viðmið um notkun: 400 kg/hektara m.v. N þörf túns í miðlungs rækt og 100 kg þörf N á hektara sem ekki hefur verið áborið með húsdýraáburði. Leitið frekari ráðlegginga um notkun hjá Líflandi eða ráðunautaþjónustu.

Ofangreindar magntölur eru hugsaðar sem viðmið. Mælt er með að gera áburðaráætlun með hliðsjón af jarðvegsgerð, ræktunarsögu, notkun viðbætts húsdýraáburðar, sýrustigi jarðvegs o.fl. til að forðast of- eða vannotkun áburðarefna.

Leitaðu tilboða í LÍF áburð hjá söludeild Líflands eða í verslunum okkar í lifland@lifland.is eða s. 540-1100.

Innihaldsefni: Kalsíum ammóníumnítrat (CAS no. 6484-52-2), díammóníumfosfat (CAS no. 7783-28-0), kalíumklóríð (CAS no. 7447-40-7), natríumselenít (CAS no. 10102-18-8)

Fjölkorna NPK áburður 25-9-9 (0,0020) með seleni

Köfnunarefni alls (N) 25,0%
Köfnunarefni nítrat (N) 10,8%
Köfnunarefni ammoníum (N) 14,2%
Fosfór P2O5 (P) ammóníumsítrat- og vatnsleysanlegur 9,0% (3,9%)
Fosfór P2O5 (P) vatnsleysanlegur 8,3% (3,6%)
Kalíum K2O (K) vatnsleysanlegur 9,0% (7,5%)
Selen (Se) 0,002%

 

Geymsluskilyrði

Geymist undir þaki eða yfirbreiðslu á köldum og þurrum stað. Undirlag skal vera þurrt og hreint eða sekkir geymdir á vörubrettum.

Áburðurinn er afgreiddur í 600 kg stórsekkjum.

Tengdar vörur

LÍF 22-8-8 - NPK áburður

Verðm/vsk
78.418 kr.

LÍF 27-6-6 - NPK áburður

Verðm/vsk
76.334 kr.