Fara í efni
Vörunúmer: 66812

LÍF 26-6+SE - NP áburður

Tvígildur, selenbættur fjölkorna áburður sem hentar með búfjáráburði á eldri tún þar sem enginn skortur er á kalí og fosfórþörf er ekki mikil. Getur líka hentað sem millisláttaráburður þar sem vöntun er á fosfór.

Vara er ekki til sölu

Þessi vara er ekki til sölu í vefverslun. Vinsamlegast hafið samband við sölumann í síma 540-1100 eða með tölvupósti á lifland@lifland.is

Tvígildur, selenbættur fjölkorna áburður sem hentar með búfjáráburði á eldri tún þar sem enginn skortur er á kalí og fosfórþörf er ekki mikil. Getur líka hentað sem millisláttaráburður þar sem vöntun er á fosfór.

Notkunarleiðbeiningar og umfang notkunar

Almenn viðmið um notkun: 385 kg/hektara m.v. N þörf túns í miðlungs rækt og 100 kg þörf N á hektara sem ekki hefur verið áborið með húsdýraáburði. Leitið frekari ráðlegginga um notkun hjá Líflandi eða ráðunautaþjónustu.

Ofangreindar magntölur eru hugsaðar sem viðmið. Mælt er með að gera áburðaráætlun með hliðsjón af jarðvegsgerð, ræktunarsögu, notkun viðbætts húsdýraáburðar, sýrustigi jarðvegs o.fl. til að forðast of- eða vannotkun áburðarefna.

Leitaðu tilboða í LÍF áburð hjá söludeild Líflands eða í verslunum okkar í lifland@lifland.is eða s. 540-1100.

Innihaldsefni: ammóníumnítrat (CAS no. 6484-52-2), kalsíumsúlfat (CAS no. 7778, díammóníumfosfat (CAS no. 7783-28-0), natríumselenít (CAS nr. 10102-18-8)

Fjölkorna NP áburður 26-6 (7,5-5,6-0,002) með brennistein, kalsíum og seleni

Köfnunarefni alls (N) 26%
Köfnunarefni nítrat (N) 11,90%
Köfnunarefni ammoníum (N) 14,10%
Fosfór P2O5 (P) ammóníumsítrat- og vatnsleysanlegur 6,0% (2,6%)
Fosfór P2O5 (P) vatnsleysanlegur 5,5% (2,4%)
Brennisteinn (SO3) (S) vatnsleysanlegur 7,5% (3,0%)
Kalsíum CaO (Ca) 5,6% (4,0%)
Selen Se 0,002%

 

Geymsluskilyrði

Geymist undir þaki eða yfirbreiðslu á köldum og þurrum stað. Undirlag skal vera þurrt og hreint eða sekkir geymdir á vörubrettum.

Áburðurinn er afgreiddur í 600 kg stórsekkjum.