Fara í efni
Vörunúmer: 66834

LÍF 22-3-3 LYSTAUKI - NPK áburður

Verðm/vsk
68.128 kr.

Léttþrígildur, fjölkorna áburður sem hentar t.d. vel milli slátta. Inniheldur viðbætt salt sem eykur lystugleika háar og eykur styrk natríums í fóðrinu. 

Vara er ekki til sölu

Þessi vara er ekki til sölu í vefverslun. Vinsamlegast hafið samband við sölumann í síma 540-1100 eða með tölvupósti á lifland@lifland.is
Verðm/vsk
68.128 kr.

Léttþrígildur, fjölkorna áburður sem hentar t.d. vel milli slátta. Inniheldur viðbætt salt sem eykur lystugleika háar og eykur styrk natríums í fóðrinu. 

Viðbætt natríumklóríð í 22-3-3 LYSTAUKA eykur natríuminnihald grassins, sem bætir lystugleika votfóðurs og getur stutt við át, án þess að hafa neikvæð áhrif á uppskeru þegar rétt er farið með.

Notkunarleiðbeiningar og umfang notkunar

Almenn viðmið um notkun: 455 kg/hektara m.v. N þörf túns í miðlungs rækt og 100 kg þörf N á hektara sem ekki hefur verið áborið með húsdýraáburði. Leitið frekari ráðlegginga um notkun hjá Líflandi eða ráðunautaþjónustu.

Ofangreindar magntölur eru hugsaðar sem viðmið. Mælt er með að gera áburðaráætlun með hliðsjón af jarðvegsgerð, ræktunarsögu, notkun viðbætts húsdýraáburðar, sýrustigi jarðvegs o.fl. til að forðast of- eða vannotkun áburðarefna.

Leitaðu tilboða í LÍF áburð hjá söludeild Líflands eða í verslunum okkar í lifland@lifland.is eða s. 540-1100.

Innihaldsefni: Kalsíum ammóníumnítrat (CAS no. 6484-52-2), natríumklóríð (CAS nr. 7647-14-5) díammóníumfosfat (CAS no. 7783-28-0), kalíumklóríð (CAS no. 7447-40-7)

Fjölkorna NPK áburður 22-3-3 (4,2 - 2,0 - 3,0) með kalsíum, magnesíum og natríum

Köfnunarefni alls (N) 22,0%
Köfnunarefni nítrat (N) 10,5%
Köfnunarefni ammoníum (N) 11,5%
Fosfór P2O5 (P) ammóníumsítrat- og vatnsleysanlegur 3,0% (1,3%)
Fosfór P2O5 (P) vatnsleysanlegur 2,7% (1,2%)
Kalíum K2O (K) vatnsleysanlegur 3,0% (2,5%)
Kalsíum CaO (Ca) 4,2% (3,0%)
Magnesíum MgO (Mg) 2,0% (1,2%)
Natríum NaO2 (Na) vatnsleysanlegur 3,0% (2,2%)

 

Geymsluskilyrði

Geymist undir þaki eða yfirbreiðslu á köldum og þurrum stað. Undirlag skal vera þurrt og hreint eða sekkir geymdir á vörubrettum.

Áburðurinn er afgreiddur í 600 kg stórsekkjum.

Tengdar vörur