Fara í efni
Vörunúmer: 66820

LÍF 16-15-12+Bór - NPK áburður

Þrígildur fjölkorna flagáburður sem er hentugur við endurræktun túna og í nýbrotið land. Bórbættur og hentar á grænfóður og kál sem er næmt fyrir bórskorti. Hentar einnig með korni og þar sem fosfór og kalí skortir tilfinnanlega. Án selens.

Vara er ekki til sölu

Þessi vara er ekki til sölu í vefverslun. Vinsamlegast hafið samband við sölumann í síma 540-1100 eða með tölvupósti á lifland@lifland.is

Þrígildur fjölkorna flagáburður sem er hentugur við endurræktun túna og í nýbrotið land. Bórbættur og hentar á grænfóður og kál sem er næmt fyrir bórskorti. Hentar einnig með korni og þar sem fosfór og kalí skortir tilfinnanlega. Án selens.

LÍF 16-15-12+Bór getur einnig hentað vel á trjáplöntur til áburðargjafar að vori eða fyrri hluta sumars. Hóflegt köfnunarefnismagn ásamt háu fosfór- og kalíinnihaldi er til þess fallið að veita plöntunni góðan stuðning til grænvaxtar en einnig til að styðja öfluga rótarmyndun og kalíinnihald eykur viðnám plantna og styður við myndun viðarfruma og sprotaþroska sem hefur svo áhrif á viðnám gegn t.d. kalskemmdum að vetri. 

Notkunarleiðbeiningar og umfang notkunar

Almenn viðmið um notkun: 625 kg/hektara m.v. N þörf túns í miðlungs rækt og 100 kg þörf N á hektara sem ekki hefur verið áborið með húsdýraáburði. Leitið frekari ráðlegginga um notkun hjá Líflandi eða ráðunautaþjónustu.

Ofangreindar magntölur eru hugsaðar sem viðmið. Mælt er með að gera áburðaráætlun með hliðsjón af jarðvegsgerð, ræktunarsögu, notkun viðbætts húsdýraáburðar, sýrustigi jarðvegs o.fl. til að forðast of- eða vannotkun áburðarefna.

Leitaðu tilboða í LÍF áburð hjá söludeild Líflands eða í verslunum okkar í lifland@lifland.is eða s. 540-1100.

Innihaldsefni: Kalsíum ammóníumnítrat (CAS no. 6484-52-2), díammóníumfosfat (CAS no. 7783-28-0), kalíumklóríð (CAS no. 7447-40-7), ammóníumsúlfat (CAS no. 7783-20-2), kalsíumkarbónat (CAS no. 471-34-1), natríum-kalsíum pentabórsýrusalt octahýdrat (CAS no. 1319-33-1)

Fjölkorna NPK áburður 16-15-12 (5,0 - 2,1 - 0,35) með brennisteini, kalsíum og bór

Köfnunarefni alls (N) 16,0%
Köfnunarefni nítrat (N) 5,1%
Köfnunarefni ammoníum (N) 10,9%
Fosfór P2O5 (P) ammóníumsítrat- og vatnsleysanlegur 15,0% (6,5 %)
Fosfór P2O5 (P) vatnsleysanlegur 13,8% (6,0%)
Kalíum K2O (K) vatnsleysanlegur 12,0% (10,0%)
Brennisteinn SO3 (S) vatnsleysanlegur 5,0% (2,0%)
Kalsíum CaO (Ca) 2,1% (1,5%)
Bór (B) 0,35%

 

Geymsluskilyrði

Geymist undir þaki eða yfirbreiðslu á köldum og þurrum stað. Undirlag skal vera þurrt og hreint eða sekkir geymdir á vörubrettum.

Áburðurinn er afgreiddur í 600 kg stórsekkjum.