Karfan er tóm.
LÍF 24-5 - NP áburður
Tvígildur, fjölkorna áburður sem hentar t.d. með búfjáráburði á eldri tún þar sem enginn skortur er á kalí og fosfórþörf er ekki mikil. Getur líka hentað sem millisláttaráburður þar sem vöntun er á fosfór. Hentar einnig vel til landgræðslu þar sem þörf á kalí er almennt lítil. Án selens.
Vara er ekki til sölu
Tvígildur, fjölkorna áburður sem hentar t.d. með búfjáráburði á eldri tún þar sem enginn skortur er á kalí og fosfórþörf er ekki mikil. Getur líka hentað sem millisláttaráburður þar sem vöntun er á fosfór. Hentar einnig vel til landgræðslu þar sem þörf á kalí er almennt lítil. Án selens.
Notkunarleiðbeiningar og umfang notkunar
Almenn viðmið um notkun: 417 kg/hektara m.v. N þörf túns í miðlungs rækt og 100 kg þörf N á hektara sem ekki hefur verið áborið með húsdýraáburði. Leitið frekari ráðlegginga um notkun hjá Líflandi eða ráðunautaþjónustu.
Ofangreindar magntölur eru hugsaðar sem viðmið. Mælt er með að gera áburðaráætlun með hliðsjón af jarðvegsgerð, ræktunarsögu, notkun viðbætts húsdýraáburðar, sýrustigi jarðvegs o.fl. til að forðast of- eða vannotkun áburðarefna.
Leitaðu tilboða í LÍF áburð hjá söludeild Líflands eða í verslunum okkar í lifland@lifland.is eða s. 540-1100.
Innihaldsefni: Kalsíum ammóníumnítrat (CAS no. 6484-52-2), díammóníumfosfat (CAS no. 7783-28-0).
Fjölkorna NP áburður 24-5 (5,0 – 4,2 – 2,0) með brennisteini, kalsíum og magnesíum
| Köfnunarefni alls (N) | 24,00% |
| Köfnunarefni nítrat (N) | 12,90% |
| Köfnunarefni ammoníum (N) | 11,10% |
| Fosfór P2O5 (P) ammóníumsítrat- og vatnsleysanlegur | 5,0% (2,2 %) |
| Fosfór P2O5 (P) vatnsleysanlegur | 4,5% (2,0%) |
| Brennisteinn SO3 (S) vatnsleysanlegur | 5,0% (2,0%) |
| Kalsíum CaO (Ca) | 4,2% (3,0%) |
| Magnesíum MgO (Mg) | 2,0% (1,2%) |
Geymsluskilyrði
Geymist undir þaki eða yfirbreiðslu á köldum og þurrum stað. Undirlag skal vera þurrt og hreint eða sekkir geymdir á vörubrettum.
Áburðurinn er afgreiddur í 600 kg stórsekkjum.