Karfan er tóm.
Þessi spennir er afar hentugur fyrir stuttar girðingar með lítilli útleiðslu. Hann er afar vinsæll sem ferðaspennir í hestaferðir, litlar, tímabundnar hestagirðingar og til að girða td utanum tjarnir eða matjurtagarða í görðum ofr.
Helstu kostir
- Ódýr, færanlegur og handhægur spennir fyrir litar girðingar með lítilli útleiðslu. Upplagður fyrir hestaferðina, litlar, tímabundnar hestagirðingar og í garða.
- Notar 2 x 1,5V D stærð af rafhlöðum sem fást víða (fylgja ekki)
- Rafhlöðurnar duga í c.a 6 vikur sé spennirinn notaður allan sólarhringinn
- Hentar fyrir c.a 200m langa girðingu án útleiðslu
- Passar jafnvel í úlpuvasa
- On/off rofi
Orkugjafi: 3V
Orkunotkun: 17mA
Gerð orkugjafa: 2 x 1,5V D rafhlöður
Hámarks drægni: 200m
Orka út Joules: 0,03J
Volt út í girðingu: 8.500
Volt við mikla útleiðslu: 400