Karfan er tóm.
Rýgresisblanda LÍF 15 kg
Rýgresisblanda LÍF er öflug og endingargóð blanda sem sameinar vetrarþol og mikla uppskerugetu. Hún byggir á úrvalsyrkjum vallarfoxgrass sem tryggja öryggi og endingu, á meðan vallarrýgresi flýtir fyrir svarðarmyndun og eykur orkugildi fóðursins. Blandan hentar einkar vel þar sem óskað er eftir kjarngóðu fóðri og kröftugum endurvexti.
Vara er ekki til sölu
Rýgresisblanda LÍF: Kjarngott fóður og örugg nýting
Rýgresisblanda LÍF er samsett með það í huga að hámarka bæði öryggi og fóðurgæði í íslenskri túnrækt. Undirstaða blöndunnar er vallarfoxgras þar sem norræna yrkið Snorri (40%) leggur til mikið vetrarþol og gegnir lykilhlutverki í að tryggja endingu við erfiðar aðstæður. Með því vinnur sænska yrkið Rakel, sem eykur uppskeru og bætir háarsprettu, og Tryggve sem er þekkt fyrir gott vetrarþol og stöðuga framleiðni gæðafóðurs.
Sérstaða blöndunnar felst í 15% hlutfalli af Birger vallarrýgresi. Birger er ferlitna (4n) yrki sem leggur til mikinn vaxtarhraða og orkuríka uppskeru. Rýgresið gegnir tvíþættu hlutverki; annars vegar skýlir það vallarfoxgrasinu á kímplöntustigi og hins vegar eykur það uppskeru og þéttleika svarðarins strax á sáðárinu.
Þessi blanda er sérstaklega hentug þar sem stefnt er að tveimur sláttum eða blandaðri nýtingu með beit. Hún skilar lystugu og kjarngóðu fóðri þar sem rýgresið bætir orkugildið og meltanleikann en foxgrasið tryggir að túnið standi af sér íslenska vetur og er vissulega lykilfóðurgrasið við íslenskar aðstæður. Besti ræktunarárangurinn næst í vel framræstum og frjósömum jarðvegi.
Innihald:
-
Vallarfoxgras: Snorri (40%), Rakel (25%), Tryggve (20%)
-
Vallarrýgresi: Birger (15%)
Ráðlagt sáðmagn: 25–30 kg/ha.
Rýgresisblanda LÍF fæst í 15 kg pokum.