Karfan er tóm.
Sáðvara
Lífland hefur um langt árabil verið í fararbroddi þegar kemur að úrvali sáðvöru sem gefið hefur góða raun við íslenskar aðstæður. Við bjóðum upp á gæðavöru, m.a. frá SW Seed í Svíþjóð (áður Svalöf) og Boreal í Finnlandi en þessi fyrirtæki eru leiðandi á sínum sviðum og hafa unnið mikið að kynbótum á nytjaplöntum fyrir norðlægar aðstæður.
Framboð Líflands er byggt upp í áralöngu samstarfi við helstu jarðræktarsérfræðinga landsins sem og bændur sem hafa margir verið duglegir að prófa sig áfram með nýjungar og ný yrki.
Starfsfólk Líflands er boðið og búið að veita þér faglega ráðgjöf um val á réttu sáðvörunni en í vefverslun okkar finnur þú jafnframt ítarlegar upplýsingar og fróðleik um allt sáðvöruúrval okkar ásamt ræktunarleiðbeiningum fyrir margar tegundir og yrki.
Skoðaðu líka sáðvörubæklinginn okkar sem þú finnur hér: