Karfan er tóm.
Vinningsuppskriftir 2026
1. sæti
TOFFÍ STAL JÓLUNUM

Hráefni
- 90 g KORNAX hveiti
- 2 msk kakó
- 1 tsk lyftiduft
- 1/4 tsk salt
- 220 g Góu suðusúkkulaði
- 60 g ósaltað smjör
- 2 egg
- 100 g sykur
- 90 g púðursykur
- 1 tsk vanilludropar
- Sjávarsalt til að toppa kökurnar með
- 60 g Góu suðusúkkulaði, grófsaxað
Aðferð
- Kveikið á ofninum og stillið á 170°C, undir- og yfirhita.
- Bræðið 220 g af Góu suðusúkkulaði ásamt smjörinu í potti.
- Leyfið blöndunni að kólna örlítið.
- Þeytið saman egg, sykur og púðursykur þar til blandan verður ljós og létt.
- Bætið vanilludropum út í.
- Hellið brædda súkkulaðinu saman við eggjablönduna í mjórri bunu.
- Blandið hveiti, kakói, lyftidufti og salti saman í annarri skál.
- Blandið þurrefnunum varlega saman við súkkulaðiblönduna.
- Bætið 60 g af grófsöxuðu Góu suðusúkkulaði út í lokin.
- Látið deigið standa á borðinu í 10-15 mín.
- Mótið kúlur úr deiginu um 10-12 g hverja.
- Bakið í 10 mínútur.
- Stráið sjávarsalti yfir kökurnar þegar þær koma út úr ofninum.
- Leyfið kökunum að kólna alveg á grind áður en Toffí blandan er sett ofan á.
TOFFÍ CRUNCH
Hráefni
- 600 g Toffí-molar frá GÓU
- 180 ml rjómi
- 90 g Cornflakes
- Sjávarsalt eftir smekk
- Frostþurrkað hindberjakurl
- Saxaðar pistasíur
Aðferð
- Bræðið Toffí-molana ásamt rjómanum í potti við vægan hita.
- Bætið við smá sjávarsalti.
- Leyfið Toffí-blöndunni að kólna örlítið.
- Myljið Kornflakes gróft og bætið því við Toffí-blönduna.
- Leyfið blöndunni aðeins að kólna.
- Setjið þunnt lag af Toffí-blöndunni ofan á hverja köku.
- Stráið frostþurrkuðu hindberjakurli og söxuðum pistasíum yfir kökurnar áður en karamellan harðnar.
Uppskriftin miðast við um 45-55 kökur, eftir stærð.
Höfundur
María Björg A
2. sæti
GLÚMUR

Hráefni
- 226 g smjör, mjúkt
- 250 g púðursykur
- 100 g sykur
- 360 g hveiti frá Kornax
- 1 tsk lyftiduft
- 1 tsk salt, fínt
- 1 tsk vanillubaunapaste
- 2 stk. egg
- 2 plötur af hvítusúkkulaði frá Lindu (helst í kæli)
- Sirka 200 g af lakkrísdýrum frá Góu (helst í kæli)
- Flögusalt þegar kökurnar eru komnar úr ofninum
Aðferð
- Hita ofninn í 175° með blæstri.
- Blanda smjör, púðursykur og sykur í 1–5 mín.
- Bæta 2 stk. eggjum við.
- Bæta lyftidufti, salti og vanillu.
- Bæta hveiti og blanda þar til hveitið er „horfið“.
- Skera súkkulaðið og bæta í.
- Svo setja deigið í kæli í 1 klst., best 72 klst.
Höfundur
Viktor Freyr Hallson
3. sæti
Jólaálfur nr. 4 (Húshjálp jólasveinsins)

Súkkulaði- og espressósmákökur
Súkkulaðismákökur
- 114 g ósaltað smjör, við stofuhita
- 212 g púðursykur
- 1 stórt egg, við stofuhita
- 2 tsk. vanilludropar
- 128 g Kornax-hveiti
- 37 g kakóduft
- 1 tsk. espressóduft
- ½ tsk. matarsódi
- ½ tsk. salt
- 100 g hvítt Lindu-súkkulaði, saxað
- 50 g pekanhnetur, saxaðar
Espressófylling
- 160 g Lindu suðusúkkulaði, smátt saxað
- 200 g rjómi
- 20 g tilbúið espressókaffi
- 10 g ósaltað smjör
Skraut
- 100 g Lindu suðusúkkulaði, brætt
- Lindu Hvítt súkkulaði
- Pistasíuhnetur
- Þurrkuð trönuber
Aðferð
- Undirbúningur Hitið ofninn í 180°C (yfir- og undirhiti). Klæðið tvær bökunarplötur með bökunarpappír.
- Deigið útbúið Þeytið smjörið og púðursykurinn saman í um 2 mínútur, eða þar til blandan er orðin létt og ljós. Bætið egginu og vanilludropunum út í og hrærið þar til allt er vel blandað.
- Þurrefnum bætt út í Bætið hveiti, kakódufti, espressódufti, matarsóda og salti út í. Hrærið aðeins þar til allt er blandast saman. Blandið söxuðu hvíta súkkulaðinu og pekanhnetunum varlega saman við deigið.
- Mótun og bakstur Mótið deigið í kúlur og raðið þeim á bökunarplöturnar með um 5 cm millibili. Bakið í 10–12 mínútur, eða þar til kantarnir hafa stífnað en miðjan er enn örlítið mjúk.
- Espressófyllingin útbúin Saxið dökka súkkulaðið smátt og setjið í skál. Hitið 100 g af rjómanum ásamt espressókaffinu þar til blandan er mjög heit og byrjar að rjúka. Hellið blöndunni yfir súkkulaðið, bætið smjörinu út í og hrærið þar til allt er bráðið og vel blandað. Bætið hinum 100 g af köldum rjóma út í og blandið þar til kremið er silkimjúkt og glansandi. Hyljið skálina og geymið í kæli þar til kremið hefur stífnað nægilega til að hægt sé að smyrja því eða sprauta því á með sprautupoka.
- Skreyting Þegar smákökurnar eru alveg kaldar og kremið hefur stífnað er kreminu smurt eða sprautað ofan á hverja smáköku. Dýfið efri hluta smákökanna í brætt súkkulaði og leyfið því að storkna. Skreytið að lokum með hvítu súkkulaði, pistasíuhnetum og þurrkuðum trönuberjum eftir smekk.
Höfundur
Hildur Bergmann