Fara í efni
Vörunúmer: 90367-5

Vetrarrepja (blendingsrepja) INTERVAL

INTERVAL er blendingur af vetrarrepju og fóðurkáli sem sameinar vaxtarhraða repjunnar og blaðgæði kálsins. Yrkið er hávaxið og blaðríkt og hefur sýnt góða burði til að gefa mikla uppskeru á stuttum tíma. Það hentar vel til haustbeitar fyrir búfé þegar draga fer úr sprettu hefðbundinna túna. INTERVAL er fljótt til eftir sáningu og hefur gefið jákvæðar niðurstöður í ræktunartilraunum hérlendis.

Vara er ekki til sölu

Þessi vara er ekki til sölu í vefverslun. Vinsamlegast hafið samband við sölumann í síma 540-1100 eða með tölvupósti á lifland@lifland.is

INTERVAL: Hraðvaxta blendingur til haustbeitar

INTERVAL er blendingur af vetrarrepju og fóðurmergkáli (Rape kale hybrid). Með því að víxla þessum tveimur tegundum er leitast við að nýta vaxtarhraða repjunnar og blaðmagn og kuldaþol kálsins. Yrkið gaf góða raun í tilraunum á Hvanneyri árið 2019 og hefur reynst vera valkostur þar sem óskað er eftir miklum blaðvexti á skömmum tíma.

Af hverju blendingsrepja?

Blendingsrepja nýtur góðs af s.k. blendingsþrótt þar sem í blendingnum sameinast spírunarþróttur og vaxtarhraði vetrarrepjunnar og kuldaþol, sein blómgun, hæg trénun og blaðmagn fóðurmergkálsins. Afraksturinn er jurt sem er fljótari að verða beitarhæf en hefðbundið kál, en frestar jafnframt blómgun og trénar síður en hrein repja. Þessir eiginleikar skila aukinni uppskeru og mótstöðu gegn umhverfisálagi, sem getur gefið góða raun til að tryggja gæði og endingu grænfóðurs til haust- og vetrarbeitar.

Hagnýtir eiginleikar og ræktun:

  • Vöxtur og þroski: INTERVAL er jafnan fljótt að spíra og ná þekju. Undir dæmigerðum kringumstæðum er plantan tilbúin til beitar u.þ.b. 10–12 vikum eftir sáningu. Vegna vaxtarhraðans nýtist yrkið vel til að mæta fóðurþörf síðsumars og á haustin þegar aðrar beitarplöntur fara í dvala.

  • Fóðurgæði: Yrkið er hávaxið og myndar mikinn blaðmassa með háu próteininnihaldi. Reynsla bændasamfélagsins og mælingar benda til þess að plantan sé lystug og hafi hátt meltanleikahlutfall, sem styður við vöxt og viðhald búfjár á haustbeit.

  • Heilbrigði: INTERVAL hefur sýnt ágætt þol gegn algengum sjúkdómum eins og mjöldögg, sem dregur úr hættu á að blaðmassinn skemmist eða verði ólystugur fyrir lok beitartímabilsins.

Ræktunaröryggi og leiðbeiningar (samkvæmt LbhÍ): Eins og við á um aðrar kálplöntur ræðst árangur ræktunarinnar að miklu leyti af undirbúningi. Mælt er með að sá í nýbrotið land með hreinu sáðbeði. Plantan þrífst best í mýrar- eða moldarríkum jarðvegi en síður í sandjörð þar sem hætta er á þurrki á ungskeiði.

Sáning fer jafnan fram í maí eða byrjun júní. Rétt er að hafa í huga að ef sáð er mjög snemma geta frostnætur örvað plöntuna til kynvaxtar (blómstrunar) á sáðárinu, sérstaklega ef hún hefur þegar myndað nokkur blöð þegar kólnar.

Ráðlagt sáðmagn: 6–10 kg/ha.

Vaxtardagar: 85–100 (tilbúin í beit á 12–14 vikum).

INTERVAL kemur í 20 kg pokum.

Meira um ræktun repju.