Fara í efni
Vörunúmer: 90381

Vetrarrepja HOBSON

HOBSON er hávaxin og uppskerumikil vetrarrepja sem hefur sannað gildi sitt sem öruggt fóður til haustbeitar. Yrkið er sérstaklega kynbætt með tilliti til lystugleika og hefur afbragðs viðnám gegn mjöldögg. Þetta tryggir að plantan heldur heilnæmi og fóðrunarvirði lengur fram eftir hausti. Hentar vel til bötunar á lambfé að hausti. 

Nafn Vetrarrepja HOBSON
Verð
Verðm/vsk
18.600 kr.
Birgðir 3
Magn
20 kg

Nafn Vetrarrepja HOBSON
Verð
Verðm/vsk
23.250 kr.
Birgðir 240
Magn
25 kg

Vara er ekki til sölu

Þessi vara er ekki til sölu í vefverslun. Vinsamlegast hafið samband við sölumann í síma 540-1100 eða með tölvupósti á lifland@lifland.is

HOBSON: Hávaxin og lystug vetrarrepja fyrir haustbeit

HOBSON er vetrarrepja (Brassica napus) sem nýtur vinsælda fyrir mikla uppskerugetu og gæði. Yrkið er hávaxið, blaðríkt og uppskerumikið. Það er þekkt fyrir áreiðanleika í ræktun og hefur sýnt góða aðlögunarhæfni við mismunandi skilyrði.

Hagnýtir eiginleikar og ræktun:

  • Heilbrigði og lystugleiki: HOBSON hefur sérstöðu þegar kemur að mótstöðu gegn sjúkdómum. Yrkið hefur sýnt gott viðnám gegn mjöldögg, en sá sveppur getur gert plöntuna ólystuga og rýrt fóðurgildi hennar verulega. Heilbrigð planta tryggir betri nýtingu og lystugra fóður fram eftir hausti.

  • Hraðsprottið og næringarríkt: Yrkið er fljótt til og myndar mikinn grænmassa á skömmum tíma. Það inniheldur hátt hlutfall próteins og hefur mælst með háan meltanleika, sem gerir það kjörið til að viðhalda vexti og holdum, t.d. við bötun á haustlömbum.

  • Harðgerði og nýting: Vegna hæðar sinnar nýtist HOBSON vel til beitar seint að sumri og fram á haust, þar sem minni hætta er á að plantan sé tröðkuð niður. Blaðvöxturinn er þéttur sem hjálpar til við að binda jarðveg og bæla illgresi.

Ræktunaröryggi og leiðbeiningar (samkvæmt LbhÍ): Vetrarrepja er mjög áreiðanleg í ræktun hérlendis ef hugað er að lykilatriðum í ræktunartækni. Til að tryggja árangur skal sá í nýbrotið tún þar sem plæging hefur farið fram, en repjan þarf hreint og gott sáðbeð til að byrja vöxtinn. Hún þrífst best í mýrar- eða moldarkenndum móajarðvegi en forðast skal sandjörð og þurrk á ungskeiði.

Æskilegur sáðtími er í maí eða byrjun júní til að hámarka uppskeru fyrir haustið. Líkt og með önnur vetrarrepjuyrki skal varast að sá of snemma ef hætta er á næturfrosti, þar sem það getur platað jurtina í kynvöxt á sáðárinu. Þetta á einkum við ef plantan hefur náð að mynda nokkur blöð þegar frýs. 

Ráðlagt sáðmagn: 6–10 kg/ha.

Vaxtardagar: 85–100 (tilbúin í beit á 12–14 vikum).

HOBSON kemur í 20 kg og 25 kg pokum.

Meira um ræktun repju.