Fara í efni
Vörunúmer: 90366

Vetrarrepja FONTAN

FONTAN er harðgerð, þýsk vetrarrepja sem gefur mikla og lystuga uppskeru. Hún skilgreinist sem 00 yrki, og inniheldur algjört lágmark af beiskjuefnum, sem tryggir hámarks meltanleika og fóðurnýtingu. Yrkið er hraðvaxta, hylur jarðveg vel og er einstaklega hentugt til haustbeitar fyrir mjólkurkýr og sláturlömb.

Nafn FONTAN Vetrarrepja
Verð
Verðm/vsk
5.439 kr.
Birgðir 2
Magn
10 kg

Nafn FONTAN Vetrarrepja
Verð
Verðm/vsk
0 kr.
Birgðir 0
Magn
25 kg

Vara er ekki til sölu

Þessi vara er ekki til sölu í vefverslun. Vinsamlegast hafið samband við sölumann í síma 540-1100 eða með tölvupósti á lifland@lifland.is

FONTAN er vetrarrepjuyrki (Brassica napus) frá Þýskalandi. Yrkið er svokallað 00-yrki, sem þýðir að það er kynbætt til að innihalda sáralítið af erúkusýru og glúkósínólötum (beiskjuefnum). Þetta gerir plöntuna mun lystugri fyrir búpening og tryggir að hún hafi ekki neikvæð áhrif á bragðgæði mjólkur eða kjöts.

Hagnýtir eiginleikar og ræktun:

  • Fóðurgæði og nýting: FONTAN einkennist af miklum blaðvexti og safakenndum stöngli. Hátt orku- og próteininnihald gerir yrkið kjörið til að viðhalda nyt og holdum þegar hefðbundin beit fer að rýrna. Hentar jafnt til randbeitar, haustbeitar eða votverkunar.

  • Vöxtur og harðgerði: Yrkið er fljótt til eftir sáningu og myndar þétta þekju sem bæla illgresi og verndar jarðveginn. Það hefur sýnt gott þol gagnvart kulda og hættir ekki til að fara í kynvöxt á sáðárinu, sem tryggir stöðug fóðurgæði fram eftir hausti.

  • Jarðvegsbæting: Öflug stólparót yrkisins nær djúpt í jarðveginn, bætir loftun og vinnur gegn jarðvegsþjöppun, sem nýtist næstu ræktunarlotu vel.

Ræktunaröryggi og leiðbeiningar (samkvæmt LbhÍ): Vetrarrepja er mjög áreiðanleg í ræktun hérlendis ef hugað er að lykilatriðum. Sá skal í nýbrotið tún með góðu og hreinu sáðbeði. Hún þrífst best í mýrar- eða moldarríkum jarðvegi en forðast skal sandjörð og þurrk á ungskeiði.

Æskilegur sáðtími er í maí eða byrjun júní. Varast skal að sá of snemma ef hætta er á næturfrosti, þar sem það getur platað jurtina í kynvöxt á sáðárinu, sér í lagi ef hún hefur náð að mynda nokkur blöð þegar frýs.

Ráðlagt sáðmagn: 8–10 kg/ha.

Vaxtardagar: 85–100 (tilbúin í beit á 12–14 vikum).

FONTAN kemur í 10 kg pokum.

Meira um ræktun repju.