Karfan er tóm.
Ungi II er kögglað vaxtarfóður fyrir varphænsnaunga frá 7 til 15 vikna aldri. Uppskriftin byggir á hveiti, maís, sojabaunamjöli, byggi, repjumjöli og sólblómafræmjöli, auk jurtaolía, amínósýra, steinefna og vítamína. Fóðrið er sérstaklega samsett fyrir unga á uppeldistímabili, þar sem markmiðið er jafn og öruggur vöxtur, góð fjaðramyndun og áframhaldandi þroski stoðkerfis.
Á þessu aldursskeiði er mikilvægt að fuglarnir vaxi jafnt án þess að næringin ýti þeim of hratt í átt að varpi. Ungi II styður við heilbrigðan þroska unghæna, góða fóðurinntöku og undirbúning fyrir næsta stig í fóðruninni. Samsetningin hentar því vel þegar ungarnir eru orðnir sprækari og farnir að nýta fóður betur, en þurfa áfram jafna og stöðuga næringu. Fyrir hobbýhænsnaeigendur nýtist fóðrið til að halda stöðugleika í fóðrun frá 7. viku og fram að þeim tíma þegar fuglarnir fara að nálgast varpaldur.
Eftir 15 vikna aldur er gott að hefja róleg umskipti yfir á varpfóður. Þá má blanda varpkögglum smám saman við Ungi II og auka hlutfall varpfóðurs næstu vikurnar. Þegar fuglarnir nálgast varp eykst þörfin fyrir kalk og næringu sem styður skurnmyndun og varpgetu. Við 19 vikna aldur ættu hænurnar að vera komnar alfarið yfir á varpköggla.
- Sérhæft vaxtarfóður fyrir varphænsnaunga frá 7 til 15 vikna aldurs.
- Korn- og próteinrík uppskrift sem styður jafnan vöxt.
- Inniheldur metíónín og lýsín til stuðnings vöðva- og fjaðurþroska.
- Kalk, fosfór, vítamín og snefilefni styðja þroska og almenna hreysti.
- Næsta ungafóður eftir Ungi I.
- Tryggir auðveld umskipti yfir á varpköggla á 15–19 vikna tímabilinu.
Fóðrið er án hníslasóttarlyfja og því er í lagi að verpandi hænur komist í það.
Fyrir þau sem eru að ala fáa unga þá bendum við sérstaklega á Ungi 0-15 vikna pokann sem inniheldur 10 kg af fóðri í stað 25 kg og nýtist því betur.