Karfan er tóm.
Ungi I er upphafsfóður fyrir varphænsnaunga frá klaki og út fyrstu 7 vikurnar. Uppskriftin byggir á hveiti, maís, sojabaunamjöli, byggi og repjumjöli, auk jurtaolía, amínósýra, kalks, fosfórs, vítamína og snefilefna. Fóðrið er sérstaklega samsett fyrir unga í vexti, þar sem áhersla er lögð á auðmeltanlega orku, nægt prótein, jafnan vöxt, góða fjaðramyndun og þroska stoðkerfis.
Fyrstu vikur ævinnar skipta miklu máli. Á þessu tímabili þurfa ungarnir stöðuga og jafna næringu, tryggja þarf góða fóðurinntöku og rétt hlutfall orkuefna, próteins, steinefna og vítamína. Ungi I er hugsað sem einföld og traust lausn fyrir hobbýhænsnaeigendur sem vilja gefa ungum sínum faglega samsett fóður frá fyrsta degi.
Fóðrið er kurlað, þ.e. kögglað fóður sem er brotið niður í smærri agnir sem auðveldar át og inntöku, sér í lagi hjá yngstu ungunum.
- Sérhæft fóður fyrir varphænsnaunga frá klaki til 7 vikna aldurs.
- Korn- og próteinrík uppskrift sem styður jafnan vöxt.
- Inniheldur amínósýrurnar metíónín og lýsín til stuðnings vöðva- og fjaðurþroska.
- Kalk og fosfór styðja sérstaklega við stoðkerfi á vaxtarskeiði.
- Jurtaolíur auka orkuþéttleika og geta stutt góða lyst.
- Vítamín og snefilefni styðja efnaskipti, þroska og almenna hreysti.
- Kurlað fóður sem er aðgengilegra fyrir yngstu fuglana.
Fóðrið er án hníslasóttarlyfja og því er í lagi að verpandi hænur komist í það.
Fyrir þau sem eru að ala fáa unga þá bendum við sérstaklega á Ungi 0-15 vikna pokann sem inniheldur 10 kg af fóðri í stað 25 kg og nýtist því betur.