Fara í efni
Vörunúmer: 22104

Ungi kurl (0-15 vikna) 10 KG

Verðm/vsk
2.401 kr.

Ungafóðrið Ungi (0-15 vikna) er kurlað, næringarríkt upphafs- og vaxtarfóður fyrir varphænsnaunga frá klaki til 15 vikna aldurs. Korn- og próteinrík uppskrift með soja, repju, jurtaolíum, amínósýrum, steinefnum og vítamínum styður hraustan vöxt, góða fjaðramyndun, öflugt stoðkerfi og jafnan þroska. 10 kg poki sem hentar vel minni hópum.

Verðm/vsk
2.401 kr.

Ungi 0-15 er kurlað ungafóður fyrir varphænsnaunga frá klaki og út fyrstu 15 vikurnar. Uppskriftin byggir á hveiti, maís, sojabaunamjöli, byggi og repjumjöli, auk jurtaolía, amínósýra, kalks, fosfórs, vítamína og snefilefna. Fóðrið er sérstaklega samsett fyrir unga í vexti, þar sem áhersla er lögð á auðmeltanlega orku, nægt prótein, jafnan vöxt, góða fjaðramyndun og þroska stoðkerfis.

Fyrstu vikur og mánuðir ævinnar skipta miklu máli fyrir varphænsnaunga. Á þessu tímabili þurfa ungarnir stöðuga og jafna næringu, tryggja þarf góða fóðurinntöku og rétt hlutfall orkuefna, próteins, steinefna og vítamína. Ungi 0-15 er hugsað sem einföld og traust lausn fyrir hobbýhænsnaeigendur sem vilja nota eitt fóður frá klaki og lengra inn í uppeldistímabilið.

Eftir 15 vikna aldur er æskilegt að hefja umskipti yfir á varpfóður í smástækkandi skömmtum. Þá má byrja að blanda varpkögglum saman við Ungi 0-15 og auka hlutfall varpfóðurs smám saman næstu 3-4 vikurnar. Á þessu tímabili eru fuglarnir að nálgast kynþroska og undirbúa sig fyrir varp, og því eykst þörfin fyrir kalk og önnur næringarefni sem styðja skurnmyndun og varpgetu. Við 19 vikna aldur ættu hænurnar að vera komnar alfarið yfir á varpköggla.

Fóðrið er kurlað, þ.e. kögglað fóður sem er brotið niður í smærri agnir sem auðveldar át og inntöku, sér í lagi hjá yngstu ungunum. 

10 kg pakkningin hentar sérstaklega vel þeim sem eru með fáa unga eða minni hænsnahóp og hafa ekki þörf fyrir 25 kg poka. Hún er meðfærileg, þægileg í geymslu og getur dregið úr því að fóður standi of lengi opið.

  • Sérhæft ungafóður fyrir varphænsnaunga frá klaki til 15 vikna aldurs.
  • Korn- og próteinrík uppskrift sem styður jafnan vöxt.
  • Inniheldur amínósýrurnar metíónín og lýsín til stuðnings vöðva- og fjaðurþroska.
  • Kalk og fosfór styðja sérstaklega við stoðkerfi á vaxtarskeiði.
  • Jurtaolíur auka orkuþéttleika og geta stutt góða lyst.
  • Vítamín og snefilefni sem styðja efnaskipti, þroska og almenna hreysti.
  • Kurlað fóður sem er aðgengilegra fyrir yngstu fuglana.
  • 10 kg poki hentar vel fyrir hobbýhænsnaeigendur, garðhænur og smærri hópa.

Fóðrið er án hníslasóttarlyfja og því er í lagi að verpandi hænur komist í það.

Tengdar vörur