Fara í efni
Nýtt
Vörunúmer: 90515

Bygg 2ja raða ARLOM 25 kg

Sænska tvíraða byggyrkið ARLOM er nýjung frá Lantmännen og kemur fyrst á almennan markað á Íslandi vorið 2026. Þótt reynsla af yrkinu sé enn takmörkuð hérlendis, gefa fyrstu tilraunir og norrænn samanburður vísbendingar um gott ræktunaröryggi á norðlægum slóðum. ARLOM er fljótþroska,

Vara er ekki til sölu

Þessi vara er ekki til sölu í vefverslun. Vinsamlegast hafið samband við sölumann í síma 540-1100 eða með tölvupósti á lifland@lifland.is

ARLOM: Efnilegt og fljótþroska tvíraða bygg frá Svíþjóð

ARLOM er nýtt tvíraða byggyrki úr kynbótastarfi Lantmännen í Svíþjóð sem boðið er til sölu í fyrsta sinn hérlendis vorið 2026. Yrkið hefur verið í prófunum undanfarin misseri, bæði á Íslandi og öðrum Norðurlöndum. ARLOM er þróað fyrir ræktunarsvæði þar sem flýtir er nauðsynlegur, án þess að fórnað sé uppskerugetu. Það er kynnt sem arftaki þekktra yrkja á borð við Arild og hefur að jafnaði skilað meiri uppskeru en til dæmis Anneli, Filippa og Kannas í norrænum samanburðartilraunum.

Uppskera og tölulegar staðreyndir:

  • Meðaluppskera: Þótt mælingar að baki yrkinu séu enn tiltölulega fáar hérlendis, benda fyrstu niðurstöður íslenskra korntilrauna til þess að ARLOM gefi drjúga uppskeru, eða um 3,64 tonn/ha (N=10).

  • Þurrefni og rúmþyngd: Við uppskeru í þessum sömu tilraunum hefur þurrefnishlutfall mælst um 50% (N=10). Kornið sýnir góða rúmþyngd, gjarnan um 62,5 kg/hl (N=10), sem gefur til kynna vel fyllt korn.

  • Þúsundkornaþungi (ÞKÞ): Kornið er stórgert og ÞKÞ hár af tvíraða byggi að vera, eða um 35,3 grömm (N=10).

  • Skriðtími og flýtir: Yrkið er fljótþroska, það skríður snemma og nær skurðarhæfni á svipuðum tíma og önnur snemmþroska yrki frá Svíþjóð og Noregi.

Hagnýtir eiginleikar og ræktun:

  • Strástyrkur: ARLOM býr að góðum strástyrk sem er eftirsóknarvert til að standast vindálag og umhleypinga. Viðunandi strástyrkur lágmarkar hættu á legu.

  • Ræktunaröryggi á Íslandi: Flýtir ARLOM gæti hjálpað til við að koma í veg fyrir haustáföll og draga úr líkum á tjóni af völdum flugvargs. Þótt raunveruleg reynsla á íslenskum ökrum eigi eftir að skera endanlega úr um ágæti þess, benda eiginleikar og fyrstu tölur til þess að yrkið nýtist vel hérlendis.

Ofangreind tölfræði byggir á samantekt úr skýrslunni Korntilraunir 2024, Rit LbhÍ nr. 177.

ARLOM fæst í 25 kg smásekkjum árið 2026 í takmörkuðu upplagi.


Almennar ræktunarráðleggingar

Jarðvegur og köfnunarefni

Við val á akurstæði fyrir bygg á Íslandi er mikilvægt að horfa til jarðvegsgerðar út frá þroskaöryggi fremur en einungis uppskerugetu.

Jarðvegsgerð og þroski: Rannsóknir sýna að bygg þroskast jafnaðarlega fyrr á mólendi eða bergefna- og sandblendnum jarðvegi (t.d. grónum áraurum, moldarríkri melajörð og áraurum) en í mýrlendi. Þetta stafar af því að slíkur jarðvegur hitnar fyrr á vorin og hefur minna magn af lífrænu köfnunarefni sem losnar seint á sumrin.

Hættan við framræst mýrlendi: Þótt framræst mýri geti verið frjósöm og álitlegt akurstæði, losar hún síðbúið köfnunarefni úr lífrænum efnum þegar jarðvegshiti nær hámarki í júlí og ágúst. Þetta getur valdið grænvexti langt fram eftir hausti.

Hliðarsprotar (síðskot): Ef köfnunarefni er til staðar í miklum mæli á seinni hluta vaxtartímans örvar það myndun hliðarsprota. Þetta leiðir til þess að akurinn verður ójafn; aðalöxin byrja að gulna á meðan hliðaröxin eru enn græn og óþroskuð. Slíkur misþroski er ein helsta hindrun þess að hægt sé að þreskja kornið við hagstæð skilyrði. Sé mikið um illa þroskuð og græn korn í uppskerunni lækkar rúmþyngd kornsins, en rúmþyngdin er aðalmælikvarðinn á sterkjufyllingu þess. Æskilegt er að stefna á að rúmþyngd sé um eða yfir 60 kg/hl.

Ráðgjöf um áburð: Á frjósömu landi eða framræstu mýrlendi þarf að sýna aðgát í köfnunarefnisnotkun. Ef markmiðið er þurrt og fullþroskað korn, er oft öruggara að rækta byggið á rýrara landi þar sem plantan „sveltist“ til þroska þegar líður á haustið, sem flýtir fyrir gulnun og þurrkun kornsins í axinu. Til frekari bollalegginga um áburðarnotkun er æskilegt að horfa vel til jarðvegsgerðar, fyrri ræktunarsögu og efnagreininga, liggi þær fyrir.

Ráðlagt sáðmagn: 180–220 kg/ha (fer eftir sáðtíma, spírunarprósentu, þúsundkornaþyngd og ástandi sáðbeðs).

Æskilegur sáðtími

Almennt er mælt með því að sá byggi eins snemma og jarðvinnsla leyfir, sem í meðalári á Suður- og Vesturlandi er gjarnan frá miðjum apríl og fram undir 15. maí.

  • Rökstuðningur: Rannsóknir Jónatans Hermannssonar hafa margsýnt að hver dagur sem vinnst á vorin skilar sér margfaldlega í þroska á haustin. Þar sem sólfar og hiti eru takmarkandi þættir hérlendis, þarf bygggrasið að ná að skríða fyrir lok júlí eða í síðasta lagi í byrjun ágúst til að kornið nái að fyllast og þroskast áður en dregur úr daglengd og hita í ágúst og september.

  • Jarðvegshiti: Þótt bygg spíri við lágan hita, er æskilegt að jarðvegshiti sé kominn í 5–6°C. Ef sáð er í of kaldan og blautan jarðveg eykst hætta á að fræið fúni eða spíri ójafnt.

Seinustu forvöð

Þótt erfitt sé að nefna eina dagsetningu sem gildir fyrir allt landið, telja íslenskir sérfræðingar að 20.–25. maí séu almennt seinustu forvöð til að sá byggi ef stefnt er að þreskingu.

  • Eftir 25. maí: Sáning eftir þennan tíma er áhættusöm. Ef sumarið verður svalt, nær kornið ekki fullum þroska (þúsundkornaþyngd verður lág og þurrefnishlutfall lágt) og þresking gæti dregist fram í október, þegar veðurfar er orðið mjög ótryggt.

  • Undantekningar: Á bestu kornræktarsvæðum landsins (t.d. undir Eyjafjöllum, uppsveitum á Suðurlandi og inn til landsins norðanlands) hefur sáning um mánaðamótin maí/júní stundum skilað uppskeru í óvenju góðum sumrum, en það telst ekki til öruggra búskaparhátta.