Karfan er tóm.
Bakteríusmit fyrir smára 105 gr
Einn poki (105 g) dugir til smitunar á 10 kg af smárafræi.
Vara er ekki til sölu
Smárar geta bundið nitur (köfnunarefni) úr andrúmslofti með hjálp Rhizobium baktería. Markviss smitun fræsins getur dregið úr þörf á tilbúnum köfnunarefnisáburði. Pokinn inniheldur um einn milljarð lifandi baktería á hvert gramm. Geyma skal óopnaðar umbúðir í kæli og opna þær ekki fyrr en rétt fyrir notkun.
Leiðbeiningar um smitun smárafræs:
-
Undirbúningur: Útbúið um 200 ml af vökva fyrir hvern poka. Mjólk (t.d. undanrenna) eða vatn með smávegis af uppleystum sykri hefur reynst vel sem bindiefni.
-
Blöndun: Setjið 10 kg af smárafræi í vel hreinsað ílát, svo sem steypuhrærivél eða múrbala. Blandaðu bakteríuduftinu vel saman við vökvann. Hellið blöndunni síðan yfir fræið og hrærið varlega þannig að hvert fræ verði rakt, án þess að merja það.
-
Aðstæður: Framkvæma skal smitun innandyra eða í skugga. Forðast ber með öllu að fræið hitni eða verði fyrir beinu sólarljósi, þar sem bakteríurnar þola hvorki útfjólubláa geisla né ofþornun.
-
Þurrkun: Leyfið smituðu fræinu að yfirborðsþorna í skugga í 15-30 mínútur svo það renni betur í gegnum sáðvélina.
Athugasemdir við sáningu: Ráðlegt er að sá hinu smitaða fræi innan sólarhrings frá blöndun, æskilegast í skýjuðu veðri og valta strax á eftir. Við gerð fræblanda skal smita smárafræið fyrst og blanda því síðan við annað fræ. Verði ófyrirséð töf á dreifingu er æskilegt að geyma smitaða fræið í kæli.