Fara í efni
Vörunúmer: 90228

Vallarrýgresi BIRGER (4n) Lífrænt vottað

SW BIRGER er ferlitna (4n) vallarrýgresi sem skilar drjúgri og orkuríkri uppskeru. Það hefur reynst vel hérlendis og býr yfir skaplegu vetrarþoli miðað við tegund. Sem ferlitna gras gefur það lystugt fóður og nýtist vel til sláttar eða beitar. Það krefst vel framræsts jarðvegs en getur þá enst í nokkur ár. Lífrænt vottað fræ.

Nafn Vallarrýgresi BIRGER Lífrænt vottað 10 kg
Verð
Verðm/vsk
10.540 kr.
Birgðir 5
Magn
10 kg

Nafn Vallarrýgresi BIRGER Lífrænt vottað 20 kg
Verð
Verðm/vsk
21.080 kr.
Birgðir 10
Magn
20 kg

Vara er ekki til sölu

Þessi vara er ekki til sölu í vefverslun. Vinsamlegast hafið samband við sölumann í síma 540-1100 eða með tölvupósti á lifland@lifland.is

SW BIRGER: Uppskerumikið og lífrænt vottað ferlitna vallarrýgresi til sláttar og beitar

SW BIRGER er ferlitna (4n) vallarrýgresi (Lolium perenne) af sænskum uppruna. Vallarrýgresi er lystugt og orkuríkt fóðurgras sem gefur bragðgott og næringarríkt fóður. Þótt tegundin sé flokkuð sem fjölær hegðar hún sér frekar sem skammært gras við íslenskar aðstæður. SW Birger hefur verið ræktuð hér á landi um árabil og sýnir góða uppskeruhæfni ásamt því að hafa viðunandi vetrarþol ef aðstæður eru réttar.

Hagnýtir eiginleikar og ræktun:

  • Uppskera og nýting: Yrkið er afkastamikið á sáðárinu. Komi það óskaddað undan vetri er það fljótt til vaxtar á vorin, jafnvel fyrr en önnur túngrös. Vallarrýgresi þolir tíðan slátt og beit, en sökum vatnsmagns og vaxhúðar getur þurrkun á velli reynst erfið ef uppskeran er mikil. Því getur gefið góða raun að slá það oftar til að viðhalda háum meltanleika og forðast að það fari í skrið.

  • Vetrarþol: Grasið getur virst líflítið snemma vors en hefur tilhneigingu til að ná sér á strik aftur þótt líflítið sé snemmvors. Til að stemma stigu við kali er mikilvægt að forðast sáningu í land sem blotnar að hausti eða vetri, eða þar sem hætta er á svellamyndun. Upplagt er að kanna lifun grassins að vori með því að stinga nokkra tappa úr túni með plöntustaf, koma fyrir í ræktunarbakka í stofuglugga og fylgjast með lifnun. Þannig má taka ákvarðanir fyrr um endurræktun eða ísáningu.

  • Ræktunarskilyrði: Ræktun tekst helst í frjósömum og vel framræstum jarðvegi og æskilegt er að huga vel að kýfingu túna. Ferlitna yrki á borð við SW Birger eru almennt stórgerðari og körftugri en tvílitna yrki og mynda þróttmikinn og þéttan svörð á sáðárinu.

Ráðlagt sáðmagn í hreinrækt: 35 kg/ha.

Sáðdýpt: 1-2 cm í vel unnið sáðbeð.

SW BIRGER kemur lífrænt vottaður í 10 og 20 kg pokum.

Meira um ræktun vallarrýgresis.