Karfan er tóm.
Sumarrýgresi SWALE (2n)
SWALE er tvílitna (2n) einært sumarrýgresi (var. westerwoldicum) frá kynbótafyrirtækinu Lantmännen í Svíþjóð, ætlað til grænfóðuröflunar. Yrkið er fljótsprottið og getur gefið góða raun þar sem óskað er eftir snemmbærri uppskeru. Yrkið er þaulreynt hérlendis og innlendar og erlendar tilraunir benda til þess að SWALE skili jafnri uppskeru og hafi eiginleika til endurvaxtar.
Vara er ekki til sölu
SWALE: Fljótsprottið sumarrýgresi til grænfóðurræktar
SWALE er tvílitna sumareinært rýgresi (Lolium multiflorum var. westerwoldicum). Yrkið hentar til grænfóðuröflunar, hvort sem er til sláttar eða beitar. Sumarrýgresi er almennt heldur fljótsprottnara en vetrarrýgresi. SWALE er afrakstur sænskra kynbóta og hefur sýnt stöðugleika í ræktun og uppskeru í íslenskum og skandínavískum prófunum. Yrkið er þaulreynt hérlendis og hefur gefið góða raun.
Hagnýtir eiginleikar og ræktun:
-
Hraðsprottið og samkeppnishæft: Sumarrýgresi getur skilað meiri uppskeru en vetrarrýgresi við aðstæður þar sem vaxtartími er stuttur, eða ef mikill arfi er til staðar.
-
Uppskera og endurvöxtur: Einært rýgresi hefur þann kost umfram sumar aðrar grænfóðurtegundir að það býr yfir góðum endurvexti fram eftir hausti. Eftir fyrri nýtingu má vænta þess að SWALE gefi ágætan endurvöxt, þó ekki til jafns við vetrarrýgresi.
-
Nýting og fóðurgildi: Eftir um 60 til 80 vaxtardaga setur sumarrýgresi punt. Til að viðhalda gæðum er nauðsynlegt að nýta sprettuna fyrir þann tíma, þar sem meltanleiki fellur við skrið. Einnig er mikilvægt að nýta grasið áður en það leggst í legu.
-
Ræktunarskilyrði: Rýgresi gerir engar sérstakar kröfur til jarðvegsgerðar, en frjósamur og vel framræstur jarðvegur er hentugur. Til að nýta vaxtartímann ákjósanlega og tryggja jafna spírun þarf að sá strax og jörð er tilbúin að vori, áður en flagið þornar.
Einæru rýgresi er yfirleitt sáð hreinu, en því má einnig sá með t.d. höfrum eða grænfóðurbyggi.
Ráðlagt sáðmagn: 35-40 kg/ha.
Vaxtardagar fram að skriði: 60-80.
SWALE kemur í 25 kg pokum.