Fara í efni
Vörunúmer: 90620

Vetrarrúgur REETTA

REETTA er finnskt yrki vetrarrúgs sem hefur til að bera gott vetrarþol. Hann er fyrst og fremst nýttur til beitar eða sláttar snemma vors eða miðsumars. Vegna vaxtarþróttar síns er REETTA hentugur valkostur ef leitast er við að tryggja mjög snemmsprottna og kjarngóða beit, t.d. fyrir lambfé og ær að vori. 

Nafn REETTA - Vetrarrúgur
Verð
Verðm/vsk
3.596 kr.
Birgðir 1
Magn
20 kg

Nafn Vetrarrúgur REETA
Verð
Verðm/vsk
107.892 kr.
Birgðir 0
Magn
600 kg

Vara er ekki til sölu

Þessi vara er ekki til sölu í vefverslun. Vinsamlegast hafið samband við sölumann í síma 540-1100 eða með tölvupósti á lifland@lifland.is

REETTA: Vetrarþolið og þróttmikið yrki til beitar og sláttar

REETTA (frá kynbótafyrirtækinu Boreal í Finnlandi) er vetrareinær korntegund sem sáð er síðsumars eða undir haust.  REETTA er afar vetrarþolið yrki rúgs. Hérlendis hefur nýting rúgs til beitar og sláttar færst í aukana, enda tekur plantan við sér um leið og hlýnar á vorin og er komin í fulla sprettu á undan hefðbundnum túngróðri.

Nýting og ræktunartækni: Rúgur er nægjusamur og þrífst best í vel framræstum og myldnum jarðvegi.

  • Haustsáning: Þegar REETTA er sáð í lok júlí eða byrjun ágúst nær plantan að festa sig í sessi fyrir veturinn. Hún heldur græna litnum og nýtist til mjög snemmbærrar vorbeitar eða sláttar árið eftir.

  • Vorsáning: Einnig má sá rúginum að vori. Hann skríður þá ekki það árið en leggur allt í grasvöxt sem má beita eða slá miðsumars og heldur fóðurgildi sínu langt fram á haust.

  • Fóðurgildi: Rúgur er lystugur fyrir búfé á grænvaxtarstigi. Hann gefur að jafnaði örugga uppskeru, sem í innsveitum getur numið 5–8 þurrefnistonnum á hektara þegar best lætur.

Ræktun til kornþroska: Þótt rúgur sé aðallega nýttur sem grænfóður hér á landi, er mögulegt að rækta hana til kornþroska í sumarhlýrri sveitum. Rúgurinn þarf þá allan vaxtartímann frá hausti til síðla hausts árið eftir til að fylla kornið. Kornið er smágert en yrkið skilar hárri rúmþyngd og REETTA er þekkt fyrir góðan strástyrk, sem dregur úr hættu á legu.

Hagnýtir eiginleikar og heilbrigði:

  • Strástyrkur: Samkvæmt finnskum tilraunum er REETTA með fremur sterkt strá sem eykur ræktunaröryggi. Á móti getur rúgurinn orðið nokkuð hávaxinn. 

  • Heilbrigði: Yrkið framleiðir mikið af frjókornum sem dregur úr hættu á myndun korndrjóla/sótsvepps (ergot). Það hefur einnig góða mótstöðu gegn blaðsveppum.

  • Vetrarþol og kalhætta: Vetrarþol yrkisins er talið mikið og það þolir vel að vera undir snjó í langan tíma vegna mikillar mótstöðu við sveppi sem oft valda skaða á grösum við slík skilyrði.

Ráðlagt sáðmagn: 180–200 kg/ha.

REETTA fæst í 20 kg og 600 kg sekkjum.

Meira um ræktun vetrarrúgs.