Fara í efni
Vörunúmer: 90346

Vor olíunepja SINUHE 20 kg óbæsað

SINUHE er nýlegt yrki af snemmsprottinni vornepju (Brassica rapa ssp. oleifera) frá finnska kynbótafyrirtækinu Boreal. Yrkið er arftaki hins vinsæla CORDELIA og hefur sýnt fram á meiri uppskerugetu og hærra olíuinnihald. SINUHE er með sterkari stöngul en forverinn, sem minnkar leguhættu. Vegna þess hve fljótt það nær þroska er það líklega heppilegt fyrir íslenskar aðstæður.

Vara er ekki til sölu

Þessi vara er ekki til sölu í vefverslun. Vinsamlegast hafið samband við sölumann í síma 540-1100 eða með tölvupósti á lifland@lifland.is

SINUHE: Snemmsprottin vornepja til olíuræktunar

SINUHE er nýlegt yrki af vornepju sem leysir af hólmi eldri yrki á borð við CORDELIA og SYNTHIA. Vornepja þarf styttri vaxtartíma en olíurepja og hentar því oft betur á norðlægum slóðum þar sem sumarið er stutt. SINUHE byggir á sömu ræktunarvissu og CORDELIA en bætir um betur hvað varðar uppskeru, olíugæði og stöngulstyrk.

Hagnýtir eiginleikar og ræktun:

  • Snemmsprottin: SINUHE er mjög fljót til og nýtir vaxtartímann vel. Það eykur líkur á fullþroska fræuppskeru áður en vetrar, sem er lykilatriði í olíuræktun á Íslandi.

  • Uppskera og gæði: Í finnskum tilraunum hefur SINUHE reynst uppskerumesta vornepjan og skilað hæsta olíuinnihaldinu. Gæði olíunnar eru mikil og blaðgrænuinnihald lágt, sem hentar vel til vinnslu.

  • Styrkur: Yrkið er heldur hávaxnara en CORDELIA en hefur sterkari stöngul. Það þýðir betra leguþol, sem auðveldar þreskingu og minnkar uppskerutap.

  • Jarðvegur og þarfir: Nepja þrífst best í moldarríkum jarðvegi sem heldur raka. Varast skal að sá í mjög þurrlenda sandjörð þar sem uppskera getur orðið rýr í þurrkum. Mælt er með 4–5 ára sáðskiptum til að fyrirbyggja sjúkdóma (Sclerotinia).

Nýting: Uppskera af SINUHE nýtist til framleiðslu á repjuolíu. Hratið sem eftir verður við pressun er próteinríkt og verðmætt sem kjarnfóður (repjumjöl) fyrir búfé.

Ráðlagt sáðmagn: 6–8 kg/ha (eða 1 sáðeining á hektara).

SINUHE kemur í 20 kg pakkningu.

Skýrslan Orkujurt - góð lesning um nepju- og repjuræktun á Íslandi