Karfan er tóm.
Vandaður kattasandur sem klumpast vel og hjálpar til við að halda kattakassanum hreinum og ferskum án viðbætts ilms.
Sandurinn dregur hratt í sig raka og myndar þétta klumpa sem auðvelt er að fjarlægja úr kassanum. Þægileg lausn fyrir heimili þar sem óskað er eftir kattasandi án ilmefna.
- Lyktarlaus
- Klumpast vel
- Dregur í sig raka
- Auðvelt að þrífa
- Hentar vel fyrir inniketti
Góð lausn fyrir ketti og eigendur sem vilja sand án ilms.
Hver poki inniheldur rúmlega mánaðarskammt fyrir einn innikött, miðað við hefðbundna notkun.
Gott að hafa í huga:
Forðastu að staðsetja kattasandskassann í mjög röku rými, til dæmis inni á baðherbergi. Þar sem sandurinn dregur í sig raka getur hann mettast fyrr ef hann er geymdur eða notaður í miklum raka.