Karfan er tóm.
Handhæg og öflug dæla og skammtari fyrir íblöndunarefni sem er auðveld í uppsetningu og mælst hefur vel fyrir hjá íslenskum bændum. Dælan kemur með 100 eða 200 L forðatanki, er rafstýrð og einföld í allri notkun. Rafstýrð Dosistar V hliðræn flæðistýring býður upp á nákvæma stjórnun innan úr vél. "Pick-up" rofi fylgir sem staðsetja má til að slökkva og kveikja á dælingu eftir stöðu sópvindunnar.
DSG dælan getur afkastað að hámarki 150 lítrum á klukkustund. Með stillanlegri flæðistýringu má ná hámarksnýtingu á verðmæt íblöndunarefni og dreifing þeirra í slægjunni verður mun nákvæmari og jafnari.
DSG dælunni má koma fyrir á rúlluvélum og hleðsluvögnum en einnig má setja hana á fóðurblandara og nota með efnum sem draga úr hitamyndun í heilfóðri.
Dælubúnaðurinn og forðatankurinn koma sambyggð á blikkstandi með lóðréttri, gataðri festiplötu sem býður upp á fjölbreytta festimöguleika, hvort sem er við rúlluvél/samstæðu, hleðsluvagn eða annað.
Sjá ítarlegri íslenska handbók fyrir DSG 100. DSG 100 og 200 dælan eru að öllu leyti eins hvað varðar íhluti og dælubúnaðinn nema hvað forðatankurinn er misstór.
Sjá einnig ítarlegra yfirlit yfir flæðistýringu og stillingar Dosistar V stýribúnaðarins á íslensku.
Allir helstu varahlutir til á lager: Lok á forðatank, pick-up rofi, úðaspíssar, hné, síur o.fl. Rafmagnsdælur er hægt að panta með stuttum fyrirvara. Einnig hægt að fá bara vökvalagnir og úðunarkerfi ásamt auka pick up rofa sem býður upp á að færa DSG dæluna milli véla, en þarf að sérpanta.
Hægt er að fá sértilboð í búnaðinn með stærri 300 lítra forðatanki. Afgreiðslufrestur getur verið 4-6 vikur.
Lífland hefur flutt DSG dælurnar inn um árabil og sístækkandi hópur ánægðra eigenda ber því vitni að hér er á ferðinni búnaður sem skilar sínu. Þar spilar líka inn í lág bilanatíðni ásamt einfaldleika í uppsetningu og notkun.
Leitið til söludeildar Líflands í s. 540-1100 eða sala@lifland.is fyrir nánari upplýsingar.