Karfan er tóm.
Háliðagras VELOX 10 kg
VELOX er nýlegt svissneskt yrki, kynbætt með norðlægum erfðalínum. Háliðagrasfræ hefur verið illfáanlegt um langt árabil en tegundin þekktist í ræktun hérlendis á árum áður. Háliðagras er þekkt fyrir að vera með fyrstu grösum á vorin og getur nýst sauðfjárbændum vel sem kjarngóð vorbeit. Gæta þarf að því að nýta sprettuna tímanlega áður en plantan fer að tréna.
Vara er ekki til sölu
Háliðagras (Alopecurus pratensis) var áður fyrr ræktað í nokkrum mæli hérlendis og er nú loks fáanlegt aftur með tilkomu svissneska yrkisins VELOX. Háliðagras er tegund sem hentar bændum sem vilja auka fjölbreytni í sinni ræktun, sér í lagi með tilliti til snemmbærrar nýtingar og vorbeitar. Við kynbætur á VELOX var m.a. stuðst við íslenskar og norskar erfðalínur, sem gerir yrkið að áhugaverðum valkosti til prófunar í íslenskri jörð.
Hagnýtar upplýsingar um háliðagras VELOX:
-
Öflug spretta að vori: Háliðagras er meðal fyrstu tegunda til að vakna á vorin. Þessi eiginleiki gerir VELOX lofandi sem vorbeit fyrir lambfé, þar sem það getur gefið góðan fóðurauka áður en hefðbundin tún eru komin almennilega af stað.
-
Nýting í tíma: Mikilvægt er að hafa í huga að háliðagras vex hratt, getur skriðið hratt og tapað þar með fóðrunarvirði. Til að tryggja fóðurgæði þarf að huga vel að tímasetningu beitar eða sláttar.
-
Svarðarmyndun og seigla: VELOX er rótskriðult og myndar þéttan svörð. Yrkið er talið sjúkdómaþolið.
-
Verð og framboð: Vegna erfiðleika við frærækt er háliðagras dýrara en hefðbundið grasfræ. Það er því fremur hugsað sem viðbót á afmarkaðar spildur en sem undirstöðuvara í almennri túnrækt. Fræið er húðað til að auðvelda alla meðferð þess og sáningu.
Sáðmagn: 25 kg á hektara.
VELOX kemur í 10 kg pokum.