Fara í efni
Vörunúmer: 90423

Fóðurnæpur SAMSON

SAMSON er ferlitna (tetraploid) yrki af fóðurnæpu sem myndar stórar, fjólubláar og safaríkar rætur. Yrkið er sérstaklega lystugt og hefur mælst með hátt meltanleikahlutfall, sem getur nýst til bötunar og haustbeitar. SAMSON hentar vel til beitar beint úr flagi fyrir nautgripi og fé og getur mikla þurrefnisuppskeru á hektarann þegar vel tekst til. 

Vara er ekki til sölu

Þessi vara er ekki til sölu í vefverslun. Vinsamlegast hafið samband við sölumann í síma 540-1100 eða með tölvupósti á lifland@lifland.is

SAMSON: Lystug og uppskerumikil fóðurnæpa til haustbeitar

SAMSON er ferlitna (tetraploid) yrki af fóðurnæpu (Brassica rapa var. rapifera) frá Bretlandi. Yrkið einkennist af stórum, ílöngum forðarótum sem vaxa að miklu leyti ofanjarðar, sem auðveldar búfénaði aðgengi og beit.

Hagnýtir eiginleikar og ræktun:

  • Fóðurgæði og lystugleiki: SAMSON hefur sýnt framúrskarandi niðurstöður í lystugleikaprófunum, þar sem búfé velur yrkið fram yfir mörg önnur. Safaríkar ræturnar hafa hátt meltanleikahlutfall og orkugildi, sem gerir það að verkum að hún hentar vel til bötunar á sláturlömbum eða sem viðbótarfóður fyrir mjólkurkýr og nautgripi á haustmánuðum.

  • Vöxtur og nýting: Fóðurnæpan þarf heldur lengri vaxtartíma en vetrarrepja til að ná fullri stærð. Hún er fljót að spíra og myndar góða þekju, en mikilvægt er að kenna búfénu á átið í upphafi. Reynslan sýnir að þegar skepnur komast upp á lagið með að bíta næpuna, verða þær mjög sólgnar í hana og atferlið erfist oft innan hjarðanna.

  • Sveigjanleiki: SAMSON má rækta í hreinrækt en einnig er algengt að blanda henni við vetrar- eða sumarrepju. Slík blanda getur dregið úr illgresisvexti og verið undirstaða fjölbreyttari grænfóðurbeitar.

Ræktunarráðgjöf (samkvæmt LbhÍ): Næpa vex best í framræstum mýrar- eða moldarjarðvegi sem er laus við fræillgresi, eins og haugarfa. Mikilvægt er að sá í nýbrotið land með vönduðu sáðbeði. Plantan er viðkvæm fyrir kálflugu og þurrki á ungskeiði. Til að tryggja að ræturnar nái fullum þroska skal stefna að sáningu í maí eða snemma í júní.

Ráðlagt sáðmagn: 2–4 kg/ha.

SAMSON kemur í 5 kg pokum.

Vaxtardagar: Um 90-110. 

Smellið hér til að lesa meira um fóðurnæpur.