Karfan er tóm.
Vetrarrepja (blendingsrepja) UNICORN
UNICORN er nýlegt og fljótsprottið blendingsyrki vetrarrepju sem hefur til að bera mikinn vaxtarhraða og lystugleika. Það er kuldaþolið og hentar vel til haustbeitar og bötunar á lömbum. UNICORN hefur sýnt góða hæfni til endurvaxtar eftir beit ef rétt er staðið að nýtingu, sem lengir uppskerutímann fram eftir hausti.
| Nafn | Vetrarrepja UNICORN |
|---|---|
| Verð | Verðm/vsk 19.096 kr. |
| Birgðir | 50 |
| Magn |
20 kg
|
| Nafn | Vetrarrepja (blendingsrepja) UNICORN |
|---|---|
| Verð | Verðm/vsk 4.774 kr. |
| Birgðir | 202 |
| Magn |
5 kg
|
Vara er ekki til sölu
UNICORN: Fljótsprottið blendingsyrki með endurvaxtargetu
er blendingur af vetrarrepju og fóðurmergkáli (Rape kale hybrid). Með því að víxla þessum tveimur tegundum er leitast við að nýta vaxtarhraða repjunnar og blaðmagn og kuldaþol kálsins. Yrkið er ræktað með áherslu á að framleiða mikinn grænmassa af gæðafóðri á stuttum tíma.
Af hverju blendingsrepja?
Blendingsrepja nýtur góðs af s.k. blendingsþrótt þar sem í blendingnum sameinast spírunarþróttur og vaxtarhraði vetrarrepjunnar og kuldaþol, sein blómgun, hæg trénun og blaðmagn fóðurmergkálsins. Afraksturinn er jurt sem er fljótari að verða beitarhæf en hefðbundið kál, en frestar jafnframt blómgun og trénar síður en hrein repja. Þessir eiginleikar skila aukinni uppskeru og mótstöðu gegn umhverfisálagi, sem getur gefið góða raun til að tryggja gæði og endingu grænfóðurs til haust- og vetrarbeitar.
Hagnýtir eiginleikar og ræktun:
-
Hraðsprottið og öflugt: UNICORN er fljótt til eftir sáningu og er tilbúið til nýtingar um 12–14 vikum síðar. Það hentar því vel til sáningar seint að vori eða snemma sumars til nýtingar að hausti.
-
Endurvöxtur: Einn helsti kostur UNICORN er hæfni þess til endurvaxtar. Ef plöntur eru beittar hóflega og þær ekki bitnar of snöggt, geta þær vaxið aftur og lengt nýtingartímann verulega.
-
Heilnæmi og gæði: Plantan er blaðrík, próteinrík og lystug, sem gerir fóðrið kjörið til bötunar á lömbum eða fyrir nautgripi. Yrkið hefur mælst með gott þol gegn mjöldögg og Alternaria sem tryggir heilnæmi fóðursins.
-
Sveigjanleiki og kuldaþol: Vegna ætternis síns (kálblendingur) þolir UNICORN kulda betur en hefðbundin sumarrepja. Það gerir bændum kleift að nýta beitina lengra fram eftir hausti þegar annar gróður er verulega farinn að dala.
Ræktunaröryggi og leiðbeiningar (samkvæmt LbhÍ): Eins og við á um aðrar kálplöntur ræðst árangur ræktunarinnar að miklu leyti af undirbúningi. Mælt er með að sá í nýbrotið land með hreinu sáðbeði. Plantan þrífst best í mýrar- eða moldarríkum jarðvegi en síður í sandjörð þar sem hætta er á þurrki á ungskeiði.
Sáning fer jafnan fram í maí eða byrjun júní. Rétt er að hafa í huga að ef sáð er mjög snemma geta frostnætur örvað plöntuna til kynvaxtar (blómstrunar) á sáðárinu, sérstaklega ef hún hefur þegar myndað nokkur blöð þegar kólnar.
Ráðlagt sáðmagn: 8–10 kg/ha.
Vaxtardagar: 80–120 (tilbúið í beit á 12–14 vikum).
Kemur í 5 og 20 kg pokum.
Þessi vara er ekki til sölu í vefverslun en pantanir og fyrirspurnir berist til söludeildar í s. 540-1100 eða sadvara@lifland.is