Fara í efni
Vörunúmer: 90364-20

Vetrarrepja RAMPART 20 kg

RAMPART er öflug vetrarrepja (fóðurrepja)  sem einkennist af miklum blaðvexti og góðum lystugleika. Hún er vetrarþolin og hentar því vel til beitar fram eftir hausti fyrir sauðfé og nautgripi. RAMPART er kynbætt fyrir aukið næringargildi og hefur sýnt gott þol gegn algengum plöntusjúkdómum.

Vara er ekki til sölu

Þessi vara er ekki til sölu í vefverslun. Vinsamlegast hafið samband við sölumann í síma 540-1100 eða með tölvupósti á lifland@lifland.is

RAMPART: Vetrarrepja með sveigjanlegan nýtingartíma

RAMPART er vetrarrepja (Brassica napus) sem hefur verið kynbætt með áherslu á fóðurgæði og sveigjanleika í beit. Hún tilheyrir nýrri kynslóð fóðurrepju sem er fljót til og gefur mikla uppskeru af próteinríku fóðri.

Hagnýtir eiginleikar og ræktun:

  • Hraðsprottið og næringarríkt: RAMPART er tilbúin til beitar u.þ.b. 12–14 vikum eftir sáningu, allt eftir tíðarfari. Hún hefur mikinn vaxtarhraða og inniheldur hátt hlutfall próteins, sem gerir hana að verðmætu fóðri til að viðhalda holdum á fé eða nautgripum á haustin.

  • Sjúkdómaþol: RAMPART hefur jafnframt sýnt gott þol gegn sjúkdómum á borð við mjöldögg og Alternaria, sem stuðlar að heilnæmu og lystugu fóðri.

  • Nýting: RAMPART hefur mikið kuldaþol sem býður upp á sveigjanlegan nýtingartíma langt fram eftir hausti. Hún hentar einkar vel til beitar fyrir lömb, ær og nautgripi þegar hefðbundið gras er farið að rýrna.

  • Sveigjanleiki: RAMPART hentar vel í hreinrækt en má einnig blanda með öðrum tegundum, s.s. vetrarrrýgresi, til að auka fjölbreytni í beit.

Ræktunaröryggi og leiðbeiningar (samkvæmt LbhÍ): Vetrarrepja er mjög áreiðanleg í ræktun hérlendis ef hugað er að lykilatriðum í ræktunartækni. Til að tryggja árangur skal sá í nýbrotið land þar sem plæging hefur farið fram, en repjan þarf hreint og gott sáðbeð til að byrja vöxtinn. Hún þrífst best í mýrar- eða moldarkenndum móajarðvegi en forðast skal sandjörð og þurrk á ungskeiði.

Æskilegur sáðtími er í maí eða byrjun júní til að hámarka uppskeru fyrir haustið. Líkt og með önnur vetrarrepjuyrki skal varast að sá of snemma ef hætta er á næturfrosti, þar sem það getur platað jurtina í kynvöxt á sáðárinu. Þetta á einkum við ef plantan hefur náð að mynda nokkur blöð þegar frýs.

Ráðlagt sáðmagn: 6–10 kg/ha (LbhÍ mælir með 8–12 kg/ha fyrir vetrarrepju almennt).

Vaxtardagar: 85–100 (tilbúin í beit á 12–14 vikum).

RAMPART kemur í 20 kg pokum.

Meira um ræktun repju.