Fara í efni
Vörunúmer: 90372

Vetrarrepja AKELA

AKELA er gamalreynt og blaðríkt yrki af vetrarrepju (Brassica napus) sem gefur mikla og lystuga uppskeru. Yrkið einkennist af mjúkum og mergkenndum stilk með háum meltanleika, sem gerir það kjörið til haustbeitar eða votverkunar. AKELA er einstaklega frostþolið, hylur jarðvegsyfirborðið fljótt og blómstrar ekki á sáðárinu.

Vara er ekki til sölu

Þessi vara er ekki til sölu í vefverslun. Vinsamlegast hafið samband við sölumann í síma 540-1100 eða með tölvupósti á lifland@lifland.is

AKELA: Laufmikil og harðgerð vetrarrepja til beitar og sláttar

AKELA er þaulreynt og stöðugt yrki af vetrarrepju (Brassica napus). Yrkið er sérstaklega þróað með tilliti til blaðvaxtar og fóðurgæða.

Hagnýtir eiginleikar og ræktun:

  • Fóðurgæði og meltanleiki: AKELA stendur öðrum yrkjum framar hvað lystugleika varðar. Stilkurinn er mjúkur og safakenndur, sem eykur meltanleika og tryggir að búpeningur nýti plöntuna til fulls. Hún gefur próteinríkt fóður sem hentar jafnt til randbeitar, haustbeitar eða sem hágæða votfóður.

  • Harðgerði og vaxtarlag: Yrkið er þekkt fyrir mikið frostþol og öflugt rótarkerfi sem nær djúpt í jarðveginn. Þetta bætir jarðvegsbyggingu og eykur loftun. AKELA vex hratt eftir sáningu, hylur jarðvegsyfirborð og temprar þannig illgresisvöxt.

  • Ræktunaröryggi: Vetrarrepja er mjög áreiðanleg ræktunarplanta hérlendis ef hugað er að lykilatriðum í ræktunartækni. AKELA blómstrar ekki á sáðárinu, sem tryggir að hún heldur fóðurgildi sínu og blaðmassa fram eftir hausti þegar annar beitargróður rýrnar.

Leiðbeiningar um ræktun (samkvæmt LbhÍ): Til að tryggja árangur skal sá í nýbrotið tún þar sem plæging hefur farið fram, en repjan þarf gott og hreint sáðbeð til að byrja vöxtinn. Hún vex best í mýrar- eða moldríkum jarðvegi en þolir illa sandjörð og þurrk á ungskeiði. Æskilegur sáðtími er í maí eða byrjun júní til að hámarka uppskeru fyrir haustið. Ekki borgar sig að sá of snemma, þar sem frostnætur geta platað jurtina í kynvöxt, sér í lagi ef hún hefur náð að mynda nokkur blöð þegar frýs. 

Ráðlagt sáðmagn: 8–10 kg/ha.

Vaxtardagar: 85–100 (tilbúin í beit á 12–14 vikum).

AKELA kemur í 10 kg pokum.

Meira um ræktun repju.