Karfan er tóm.
Ertur INGRID
Ertuyrkið INGRID er snemmþroska og afkastamikið sænskt yrki sem myndar gular ertur. Það hefur sýnt góða aðlögunarhæfni að norðlægum aðstæðum og hentar vel til heilsæðisræktunar. Yrkið einkennist af löngum og sterkbyggðum stöngli sem dregur úr leguhættu og stendur vel gegn illgresi. INGRID gefur góða raun í blöndu með korntegundum.
| Nafn | INGRID ertur |
|---|---|
| Verð | Verðm/vsk 5.673 kr. |
| Birgðir | 60 |
| Magn |
25 kg
|
| Nafn | INGRID ertur |
|---|---|
| Verð | Verðm/vsk 158.844 kr. |
| Birgðir | 9 |
| Magn |
700 kg
|
Vara er ekki til sölu
INGRID: Snemmsprottnar gular fóðurertur til heilsæðisræktunar
INGRID er sænskt ertuyrki frá Lantmännen sem gefur af sér gular ertur - þessar sem við tengjum við saltkjötið og túkallinn. Yrkið er nokkuð snemmþroska og hefur sýnt góðan stöðugleika við norðlægar aðstæður. Í heilsæðisræktun nýtist INGRID á markvissan hátt til að hækka prótein- og steinefnainnihald gróffóðursins, sem getur dregið úr þörf fyrir aðkeypt kjarnfóður.
Hagnýtir eiginleikar og ræktun:
-
Vöxtur og samkeppnishæfni: Yrkið státar af sterkbyggðum og tiltölulega löngum stöngli (oft um 90-95 cm). Þessi vaxtarhraði og hæð gerir því kleift að keppa ágætlega við illgresi, auk þess sem stöngulstyrkurinn vinnur gegn því að grasið leggist í legu þegar líður á sumarið.
-
Heilbrigði og uppskera: INGRID hefur sýnt mótstöðu gegn algengum sjúkdómum í ertum og heldur fræjunum vel í belgjunum við þroska. Uppskeran er jafnan drjúg.
-
Niturbinding og smit: Líkt og smárar binda ertur köfnunarefni úr andrúmsloftinu. Til að tryggja þessa eiginleika er æskilegt að meðhöndla fræið með viðeigandi Rhizobium bakteríusmiti áður en því er sáð. Ef stutt er frá síðustu ræktunarlotu með ertum í ræktarlandinu getur smitun þó verið óþörf.
-
Sáðmagn og sáning í blöndum: Fræ þessa yrkis eru tiltölulega stór (hár þúsundkornaþungi), en í heilsæðisræktun er æskilegt að stefna að 50-70 ertuplöntum á hvern fermetra. Algengt viðmið í sáðmagni er um 100-120 kg/ha á móts við 75-100 kg/ha af byggi eða 50-75 kg/ha af sumarhöfrum.
-
Heppileg sáðdýpt er um 2-4 sm í vel unnið og slétt sáðbeð, og æskilegt er að sá eins snemma vors og aðstæður leyfa.
Æskilegt getur verið að meðhöndla fræið með Rhizobium bakteríusmiti áður en því er sáð. Sjá tengda vöru hér niðri.
Ertur og byggheilsæði
-
Uppskera og lífmassi: Íblöndun ertna í heilsæðisræktun eykur heildaruppskeru í samanburði við hreint bygg. Uppskeran getur nánast tvöfaldast milli fyrri og seinni sláttutíma. Hlutur ertna í lífmassanum vex eftir því sem líður á sumarið og getur numið allt að 48% af þurrefnisuppskerunni í seinni slætti.
-
Prótein- og orkugildi: Hreint bygg er oft á tíðum próteinsnautt. Ertur hækka próteinhlutfall heilsæðisins talsvert án þess að draga úr orkustyrk að ráði. Þetta bætir amínósýrusamsetningu gróffóðursins og getur dregið markvisst úr þörf fyrir aðkeypta próteinviðbót.
-
Þurrefni og verkun: Bygg-ertublanda gefur safaríkara fóður en hreint bygg, en skilar um leið hærra og meðfærilegra þurrefnishlutfalli en repjublöndur gera. Þetta skapar gott jafnvægi við verkun og dregur úr áhættu við rúllugerð.
-
Sláttur og vélavinna: Sláttubúnaður vinnur vel á ertublöndum og tap korns við slátt er almennt minna en í hreinu byggi. Fóðrið hentar vel til stæðuverkunar þar sem hægt er að saxa smærra og nota íblöndunarefni.
Heimild: Verkun byggheilsæðis í blöndu með repju eða ertu. Fræðaþing landbúnaðarins, 2009 (byggt á rannsókn á Möðruvöllum 2008).