Karfan er tóm.
Sterkur og fjölnota strigapoki úr náttúrulegum hessianstriga (júta/jute). Pokinn er opinn í annan endann og hentar vel til margvíslegra nota á heimilinu, í garðinum, á býlinu eða í skreytingar.
Strigapokinn er úr grófum hessianstriga sem er slitsterkur, sveigjanlegur og brotnar niður í náttúrunni. Hann nýtist til dæmis undir hey, ull, garðúrgang, eldivið, grænmetisuppskeru eða annað sem þarf að geyma, flytja eða pakka inn á einfaldan og náttúrulegan hátt.
Pokinn er einnig hentugur í föndur, útstillingar og sveitalegar, náttúrulegar skreytingar þar sem gróft og hrátt útlit strigans nýtur sín vel.
Eiginleikar:
-
Stærð: 110 × 60 cm, c.a. 50 kg burðargeta
-
Efni: 100% hessianstrigi / júta, 320 g/m²
-
Opinn í annan endann
-
Sterkur og slitþolinn
-
Náttúrulegt efni sem brotnar niður í náttúrunni
-
Hentar til fjölbreyttra nota inni og úti
-
Góð lausn fyrir garðverk, bústörf, geymslu, flutning og skreytingar
Dæmi um notkun: hey, ull, garðverk, uppskeru, eldivið, jólaskreytingar, föndur, útstillingar og almenn notkun á heimili eða í búrekstri.