Karfan er tóm.
Vetrarrepja UNICORN
UNICORN er nýlegt og fljótsprottið blendingsyrki vetrarrepju sem hefur til að bera mikinn vaxtarhraða og lystugleika. Það er kuldaþolið og hentar vel til haustbeitar og bötunar á lömbum. UNICORN hefur sýnt góða hæfni til endurvaxtar eftir beit ef rétt er staðið að nýtingu, sem lengir uppskerutímann fram eftir hausti.
| Nafn | Vetrarrepja UNICORN |
|---|---|
| Verð | Verðm/vsk 19.096 kr. |
| Birgðir | 0 |
| Magn |
20 kg
|
| Nafn | Vetrarrepja UNICORN |
|---|---|
| Verð | Verðm/vsk 4.774 kr. |
| Birgðir | 2 |
| Magn |
5 kg
|
Vara er ekki til sölu
UNICORN: Fljótsprottið blendingsyrki með endurvaxtargetu
UNICORN er blendingsyrki (Rape Kale Hybrid) sem sameinar hraðan vöxt repjunnar og kuldaþol fóðurkálsins. Yrkið er ræktað með áherslu á að framleiða mikinn grænmassa af gæðafóðri á stuttum tíma.
Hagnýtir eiginleikar og ræktun:
-
Hraðsprottið og öflugt: UNICORN er fljótt til eftir sáningu og er tilbúið til nýtingar um 12–14 vikum síðar. Það hentar því vel til sáningar seint að vori eða snemma sumars til nýtingar að hausti.
-
Endurvöxtur: Einn helsti kostur UNICORN er hæfni þess til endurvaxtar. Ef plöntur eru beittar hóflega og þær ekki bitnar of snöggt, geta þær vaxið aftur og lengt nýtingartímann verulega.
-
Heilnæmi og gæði: Plantan er blaðrík, próteinrík og lystug, sem gerir fóðrið kjörið til bötunar á lömbum eða fyrir nautgripi. Yrkið hefur mælst með gott þol gegn mjöldögg og Alternaria sem tryggir heilnæmi fóðursins.
-
Sveigjanleiki og kuldaþol: Vegna ætternis síns (kálblendingur) þolir UNICORN kulda betur en hefðbundin sumarrepja. Það gerir bændum kleift að nýta beitina lengra fram eftir hausti þegar annar gróður er verulega farinn að dala.
Blendingsrepja/Fóðurkál (t.d. Brassica napus x Brassica oleracea) er ræktað með svipuðum hætti og hefðbundin vetrarrepja. Það þarf frjósaman jarðveg og þrífst best í mýrar- eða moldarkenndum móajarðvegi. Mikilvægt er að forðast sandjörð og tryggja að jarðvegur haldi vel raka. Blendingsyrki eru mikilvæg til að lengja beitartímabilið, spara innigjöf og nýta túnið eins lengi og veður leyfir að hausti.
Ráðlagt sáðmagn: 8–10 kg/ha.
Vaxtardagar: 80–120 (tilbúið í beit á 12–14 vikum).
Kemur í 5 og 20 kg pokum.
Þessi vara er ekki til sölu í vefverslun en pantanir og fyrirspurnir berist til söludeildar í s. 540-1100 eða sadvara@lifland.is