Fara í efni
Vörunúmer: VHPLAST50GR

Megastretch rúlluplast 50cm x 1800m grænt

Verðm/vsk
17.348 kr.

Megastretch rúlluplastið hefur skapað sér góðan orðstír fyrir að vera gott í vinnslu og fyrir að tryggja góða varðveislu fóðurs við íslenskar aðstæður. 50 cm breiða plastið hentar í ýmsar eldri samstæður og stórbaggavélar. 

Verðm/vsk
17.348 kr.

Megastretch rúlluplastið hefur skapað sér góðan orðstír fyrir að vera gott í vinnslu, hafa góða límeiginleika og fyrir að tryggja góða varðveislu fóðurs við íslenskar aðstæður. Megastretch plastið er unnið úr DOWLEX PE plastfilmu sem er þekkt fyrir styrk, ógegndræpni og þanþol. Megastretch rúlluplastið hefur skapað sér gott nafn meðal íslenskra bænda á liðnum árum, ekki síst meðal verktaka sem þurfa að rúlla miklu magni á stuttum tíma. 

Megastretch plastið er fimm laga blásin filma sem er ekki forstrekkt. Þykkt plastsins er 25 míkron sem veitir því gott þol fyrir mögulegum skemmdum vegna harðara stöngla í heyjum. Plastið fæst í hvítum, grænum og svörtum lit. 

Megastretch rúlluplastið kemur á PE plastkjarna, en plastkjarninn kemur í veg fyrir að hann þenjist í rakviðri. Þaninn pappakjarni getur valdið slitum og vandræðum þegar lítið fer að verða eftir á keflinu. 

Á 50 cm rúllunni eru 1.800 metrar á rúllu, með fimm laga blásna filmu sem er ekki forstrekkt. Plastið er 25 míkron að þykkt. Fæst í grænum lit.  40 stk. á bretti.