Fara í efni
Nýtt
Vörunúmer: TRKS-ORK-RS

TR höfuðleður Orka bleikar perlur

Verðm/vsk
15.490 kr.

Orka anatomískt höfuðleður skreytt með bleikum rhodonite steinum

Verðm/vsk
15.490 kr.

Glæsilegt anatomískt höfuðleður úr hágæða djúpsvörtu leðri – hannað fyrir knapa sem leggja áherslu á þægindi, stíl og sterkt samband við hestinn.

Skreytt bleikum rhodonite steinum, hraunperlum og fíngerðum kristalhringjum sem skapa hlýlegt en fágað útlit þar sem náttúruleg fegurð og glæsileg hönnun mætast.

Rhodonite er þekktur sem steinn samkenndar og tilfinningalegs jafnvægis og hentar vel knöpum sem vilja ró, næmni og traust í vinnu með hestinum.

Hraunperlurnar bæta við íslenskum karakter og tákna styrk og jarðtengingu.

Anatomísk lögun höfuðleðursins dreifir þrýstingi betur og styður við frjálsar og afslappaðar hreyfingar í reið. Mjúkt hágæðaleður, svartir spennur og látlaust Topreiter merki fullkomna tímalaust og fágað útlitið.