Karfan er tóm.
Sumarhafrar JACKY
JACKY er nýtt hafrayrki sem hefur til að bera mikinn vaxtarþrótt og sterkan stöngul. Þótt yrkið sé óreynt hérlendis bendir öflugur vöxtur og blaðmagn til þess að það henti vel sem grænfóðurhafrar. JACKY er raunhæfur valkostur þar sem stefnt er að góðri uppskeru af lystugu hafragrasi til sláttar.
| Nafn | Sumarhafrar JACKY 25 kg |
|---|---|
| Verð | Verðm/vsk 4.433 kr. |
| Birgðir | 0 |
| Magn |
25 kg
|
| Nafn | Sumarhafrar JACKY 600 kg |
|---|---|
| Verð | Verðm/vsk 106.392 kr. |
| Birgðir | 0 |
| Magn |
600 kg
|
Vara er ekki til sölu
JACKY er nýtt þýskt hafrayrki í okkar úrvali sem myndar blaðmikinn grænmassa. Þótt yrkið hafi ekki verið prófað hérlendis, benda allar upplýsingar um vaxtarlag og blaðmassa til þess að JACKY henti vel til grænfóðuröflunar. Samkvæmt erlendum tilraunum hefur JACKY til að bera góðan strástyrk, sem er mikilvægur eiginleiki til að minnka líkur á að spildur leggist í legu fyrir slátt.
Nýting sem grænfóðurhafrar:
-
Sláttur og beit: Fóðurgildi grænfóðurhafra ræðst nær eingöngu af þroskastigi við nýtingu. Til að ná hámarksgæðum er mælt með því að nýta JACKY fyrir eða um skrið. Þá er sykurinnihald í hámarki og meltanleiki mikill, en eftir skrið fellur fóðurgildið hratt líkt og hjá öðrum grastegundum.
-
Uppskerugeta: Hafrar gefa að jafnaði góða grænfóðuruppskeru, oft á bilinu 4–8 þurrefnistonn á hektara. JACKY hefur til að bera vaxtarhraða sem ætti að nýtast vel til að ná þessum viðmiðum á íslensku sumri.
Hagnýtir eiginleikar og ræktun:
-
Strástyrkur: Yrkið er þekkt fyrir að standa vel, sem dregur úr hættu á legu í úrkomusömum sumrum.
-
Fjölhæfni: Yrkið hentar vel til ræktunar eitt og sér en einnig sem skjólsáning með sáðgresi eða í blöndu með ertum, sem getur hækkað próteininnihald uppskerunnar.
JACKY fæst í 25 kg smásekkjum og 600 kg stórsekkjum.
Leiðbeiningar um ræktun grænfóðurhafra
Ræktun hafra til sláttar eða beitar, þar sem grasið er nýtt (ekki heilsæði eða korn), miðar að því að hámarka lífmassa og gæði blaðvaxtarins.
Jarðvegur og sáningartími: Hafrar eru nægjusamir og þola súran jarðveg betur en aðrar korntegundir, allt niður í pH 5,3. Grænfóðurhöfrum má sá síðar en höfrum til þroska, eða allt frá því að jarðvinnsla hefst og fram undir miðjan júní. Þetta gefur svigrúm ef vorverk dragast eða ef sá á í nýræktarspildur.
Sáðmagn: Til að tryggja þéttan blaðmassa og fínna strá er mælt með ríflegu sáðmagni, að jafnaði 200–220 kg/ha. Þétt sáning hjálpar plöntunum að loka yfirborði snemma, sem hamlar illgresisvexti og eykur lystugleika fóðursins.
Áburðargjöf og nýting: Hafrar svara köfnunarefni vel með auknum blaðvexti. Fóðurgildið ræðst nánast eingöngu af þroskastigi við slátt. Til að tryggja hámarksgæði (hátt prótein og sykur) skal slá hafrana fyrir eða um skrið. Við skrið eykst tréni hratt og meltanleiki fellur, þótt þurrefnisuppskera aukist. Æskilegt er að láta grasið liggja og visna í a.m.k. sólarhring til að hækka þurrefnishlutfall fyrir verkun í rúllur.