Fara í efni
Vörunúmer: 99012

Uppgræðslublanda

Verðm/vsk
1.190 kr.

Uppgræðslublanda er harðgerð grasfræblanda til uppgræðslu á rasksvæðum eða ógrónum svæðum þar sem umhirða er takmörkuð. Blandan inniheldur tegundir sem binda jarðveg á skjótan hátt og þola þurrk og frostlyftingu vel. Hún hentar vel til uppgræðslu á rofabörðum, melum og á önnur opin svæði þar sem þörf er á seiglu og stöðugleika.

Nafn Uppgræðslublanda 10 kg
Verð
Verðm/vsk
8.990 kr.
Birgðir 257
Magn
10 kg

Nafn Uppgræðslublanda 1 kg
Verð
Verðm/vsk
1.190 kr.
Birgðir 413
Magn
1 kg

Verðm/vsk
1.190 kr.

Uppgræðslublanda: Lausn fyrir hrjóstrug svæði og rask

Uppgræðslublanda er samsett með það í huga að ná skjótri bindingu á lausum jarðvegi og tryggja stöðugleika á svæðum sem verða fyrir barðinu á uppblæstri eða frostlyftingu. Blandan samanstendur af vaxtarsæknum og harðgerðum tegundum sem vinna saman að því að mynda þéttan svörð við rýrar aðstæður.

Í blöndunni er vallarrýgresi (30%) sem er fljótt til vaxtar og myndar lífrænan massa sem bindur jarðveginn á fyrstu stigum ræktunarinnar. Því til stuðnings eru túnvingull (30%) og rauðvingull (30%) sem eru þurrkþolnar tegundir og veita blöndunni nauðsynlega seiglu til langs tíma. Vallarsveifgras (10%) eykur vetrarþolið og hefur skriðult vaxtarlag sem hjálpar til við að loka eyðum í sverðinum.

Blandan er hentugur kostur til að bæta rask í kringum mannvirki, sumarhús eða vegkanta þar sem ekki er gert ráð fyrir mikilli eftirfylgni eða reglulegri vökvun. Með þessari samsetningu næst fram áreiðanleg þekja sem verndar jarðvegsyfirborðið og býr í haginn fyrir frekari gróðurframvindu.

Innihald:

  • Vallarrýgresi (30%): Fljótsprottin tegund sem bindur jarðveg og myndar massa.

  • Túnvingull og rauðvingull (60%): Mynda harðgerðan og þurrkþolinn grunn.

  • Vallarsveifgras (10%): Vetrarþolið gras sem lokar eyðum með neðanjarðarrenglum.

  • Yrki: Vallarrýgresi ROKADE 30%; túnvingull CAPRICCIO/CALLIOPE 30%; rauðvingull MAXIMA 1   30%; vallarsveifgras MIRACLE 10%.  

Leiðbeiningar um sáningu og umhirðu

Undirbúningur og undirlag Vönduð jarðvinnsla auðveldar alla vinnu en í uppgræðsluverkefnum getur verið gott að raka jarðvegsyfirborðið til að losa aðeins um það og gera sáðbeðinn aðgengilegri fyrir fræið. 

Sáðmagn

  • Smærri svæði og rask: 2 kg af fræi á hverja 100 m² til að ná fram þéttleika á stuttum tíma.

  • Stærri framkvæmdir og uppgræðsla: Miða má við 0,5–0,6 kg á hverja 100 m² (50–60 kg/ha).

Dreifing fræsins Dreifið fræinu í lygnu veðri til að tryggja jafna þekju. Gott er að skipta skammtinum í tvennt og dreifa fyrri hlutanum langsum en þeim síðari þversum yfir flötina. Eftir dreifingu skal raka mjög léttilega yfir svæðið og valta svo yfir með garðvalta til að tryggja góð tengsl fræsins við sáðbeðinn, ef því er við komandi. 

Áburðargjöf Mælt er með að bera þrígildan áburð (t.d. Græði 6, Blákorn eða Graskorn) á svæðið strax eftir sáningu, um 4–6 kg á hverja 100 m². Ekki skal blanda fræi og áburði saman í fötuna þar sem efnin eru misþung og dreifast því ójafnt.

Umhirða eftir sáningu Eftir sáningu þarf að halda yfirborðinu jafnröku og vökva ef þurrkur gerir vart við sig. Spírun og vöxtur getur tekið 4–6 vikur og er mikilvægt að friða svæðið fyrir umferð og leik á meðan grasið er að festa rætur og mynda svörð.

Reglubundið viðhald

  • Kölkun: Gott er að kalka annað eða þriðja hvert ár til að draga úr mosavexti.

  • Áburður: Berið áburð á að vori (4–5 kg/100 m²) og endurtakið eftir þörfum yfir sumarið.

  • Hausthirða: Gætið þess að grasflötin fari ekki of loðin undir vetur til að draga úr sinumyndun.


Gott ráð: Fræblöndur með úthagagróðri

Þar sem fræblöndur með íslenskum úthagagróðri eru almennt ekki fáanlegar er hægt að beita öðrum aðferðum. Ef úthagablettir í nágrenni sumarhúsa eru slegnir með orfi að haustlagi, þegar plöntur hafa fellt fræ, má dreifa slægjunni á bletti sem verið er að græða upp. Þannig flytjast bæði fræ og plöntuhlutar sem geta náð fótfestu og gefið svæðinu náttúrulegt yfirbragð. Að sama skapi er skynsamlegt að bera lága skammta áburðar á svæðið, 1-2 kg/100 m2 á ári í nokkur ár, meðan gróður festir rætur.