Fara í efni
Vörunúmer: 99015

Garðablanda

Verðm/vsk
1.290 kr.

Garðablanda er grasfræblanda sérstaklega samsett fyrir grasflatir þar sem kröfur eru gerðar um þéttleika og slitþol, svo sem í heimilisgarða, á íþróttavelli eða brautir golfvalla. Blandan samanstendur af lágvöxnum og þéttvöxnum grastegundum sem þola snöggan slátt vel en krefjast þess jafnframt ekki að slegið sé mjög oft. Rétt samsetning tryggir jafna og fallega grasflöt sem þolir álag og ágang.

Nafn Garðablanda
Verð
Verðm/vsk
9.989 kr.
Birgðir 247
Magn
10 kg

Nafn Garðablanda
Verð
Verðm/vsk
1.290 kr.
Birgðir 834
Magn
1 kg

Verðm/vsk
1.290 kr.

Garðablanda: Fyrir græna og gróskumikla grasflöt

Garðablanda er grasfræblanda sérstaklega samsett fyrir grasflatir þar sem kröfur eru gerðar um þéttleika og slitþol, svo sem í heimilisgarða, á íþróttavelli eða brautir golfvalla. Blandan samanstendur af lágvöxnum og þéttvöxnum grastegundum sem þola snöggan slátt vel en krefjast þess jafnframt ekki að slegið sé mjög oft. Rétt samsetning tryggir jafna og fallega grasflöt sem þolir álag og ágang.

Innihald og eiginleikar

Blandan er samsett úr fimm ólíkum grastegundum sem hver um sig gegnir ákveðnu hlutverki við myndun grassvarðar: 

  • Rauðvingull og túnvingull (65%): Mynda uppistöðu blöndunnar. Þetta eru fíngerðar tegundir sem tryggja þéttleika og þola þurrk vel.

  • Vallarrýgresi (20%): Spírar hratt og gefur blöndunni gott slitþol strax í upphafi.

  • Vallarsveifgras (10%): Myndar neðanjarðarrenglur sem hjálpa fletinum að loka eyðum og þétta sig með tímanum.

  • Sauðvingull (5%): Eykur seiglu blöndunnar við rýrari skilyrði og takmarkaða áburðargjöf.

Yrki: Vallarrýgresi ROKADE 20%; túnvingull CAPRICCIO/CALLIOPE 20%; rauðvingull MAXIMA 1 45%; sauðvingull RIDU 5%; vallarsveifgras MIRACLE 10%. 


Leiðbeiningar um sáningu og umhirðu

Undirbúningur Vönduð jarðvinnsla er undirstaða fallegrar grasflatar. Besti valkosturinn sem undirlag er léttsandblönduð gróðurmold. Ef notaður er sandur til jöfnunar skal hann ekki vera í þykkara lagi en 2–5 cm yfir moldinni. Flötina þarf að grjóthreinsa, raka vandlega og slétta fyrir sáningu, þar sem erfitt getur verið að lagfæra ójöfnur eftir að grasið hefur náð fótfestu.

Sáðmagn

  • Íbúðarhúsalóðir og smærri svæði: Miðað er við 2 kg af fræi á hverja 100 m² til að ná fram þéttum sverði á sem skemmstum tíma.

  • Stærri svæði og uppgræðsla: Við vegkanta, umferðarmanir eða stærra rask má miða við 0,5–0,6 kg á hverja 100 m² (50–60 kg/ha).

Dreifing fræsins Mælt er með því að dreifa fræinu í lygnu veðri. Fyrir óvana er gott ráð að skipta skammtinum í tvennt eða þrennt; dreifa fyrri hlutanum langsum yfir flötina og þeim síðari þversum. Þannig næst jafnari þekja. Eftir dreifingu skal raka létt yfir með hrífu og valta svo yfir svæðið með garðvalta til að tryggja góð tengsl fræsins við sáðbeðinn.

Áburðargjöf við sáningu Gott er að bera þrígildan áburð (t.d. Græði 6, Blákorn eða Graskorn) á svæðið strax eftir sáningu, um 4–6 kg á hverja 100 m². Mikilvægt er að blanda fræi og áburði ekki saman í fötu við dreifingu þar sem efnin eru misþung og dreifast því ójafnt.

Umhirða eftir sáningu Halda þarf yfirborðinu jafnröku á meðan spírun stendur yfir. Notið fínlegan úðara og vökvið reglulega en forðist að mynda polla. Flest yrkin í Garðablöndu eru 4–6 vikur að fullspíra, þótt fyrstu plöntur sjáist gjarnan eftir um tvær vikur. Friða skal svæðið fyrir umferð og leik á meðan grasið er að festa rætur.

Reglubundin umhirða og viðhald

  • Sláttur: Forðist að láta flötina fara loðna undir vetur þar sem það eykur hættu á sinumyndun og mosavexti.

  • Kölkun: Gott er að kalka annað eða þriðja hvert ár með skeljasandi eða áburðarkalki til að viðhalda réttu sýrustigi.

  • Áburður: Berið áburð á að vori (4–5 kg/100 m²) og endurtakið 1–2 svar yfir sumarið með minni skömmtum (2 kg/100 m²) til að viðhalda grænum lit og þrótti.


Gott ráð: Fræblöndur með úthagagróðri

Fræblöndur með íslenskum úthagagróðri eru almennt ekki fáanlegar í verslunum. Ef óskað er eftir að fá úthagaáferð á raskbletti í nágrenni sumarhúsa er gott ráð að slá gróna úthagabletti í nágrenninu með orfi að haustlagi þegar plönturnar hafa fellt fræ. Með því að dreifa slægjunni yfir þau svæði sem á að græða upp flytjast bæði fræ og plöntuhlutar sem geta náð fótfestu og gefið svæðinu náttúrulegra yfirbragð með tímanum. Að sama skapi er skynsamlegt að bera lága skammta áburðar á svæðið, 1-2 kg/100 m2 á ári í nokkur ár, meðan gróður festir rætur.

Tengdar vörur

Uppgræðslublanda

Verðm/vsk
1.190 kr.