Karfan er tóm.
Fóðurhringurinn minnkar heyslæðing og sóun við gjafir. Eins eru minni líkur á að frek dýr nái að halda hlédrægari dýrum frá gjafastaðnum.
Hringurinn vegur aðeins 45kg og er hannaður til að auðvelt sé að færa hann á milli staða. Hringum er lyft upp og honum rúllað á nýjan stað þar sem ekki er hætta á mengun af fyrri gjafastað. Að öðrum kosti er hægt að setja hringinn niður yfir nýju rúlluna. Þannig kemur maður í veg fyrir að leyfar gömlu rúllunnar mengi nýju rúlluna. Oft er svæðið í kring um rúlluna einnig úttroðið og drullugt svo að með því að færa hringinn minnkar það líkurnar á því að dýrin standi í drullu við átið.
Hringurinn er hannaður með öryggi dýranna í huga. Plastið er vel rúnnað og það eru engar beittar brúnir eða horn. Stærri dýr éta einnig úr hringnum í náttúrulegri átstöðu sem minnar líkur á stífleika í vöðvum og liðum.
Hringurinn er samsettur úr fjórum einingum sem eru boltaðar saman. Athugið að hver endi á að liggja yfir næsta. Boltar og festingar fylgja hringnum.