Karfan er tóm.
Öflugur og hagkvæmur LED flugnabani sem verndar allt að 140 m² gegn flugum og öðrum fleygum skordýrum. Dúó LED hentar vel í verslanir, lagera, verkstæði, iðnaðarrými, starfsmannarými og önnur innanhússrými þar sem þörf er á öflugri vörn gegn flugum.
Tækið notar tvær ActaLED perur sem laða flugur að tækinu. Nýju ActaLED perurnar nota um 70% minni orku en gömlu Actalite perurnar og endast mun lengur, eða í allt að 3 ár í stað 1 árs. Það lækkar rekstrarkostnað, minnkar viðhald og gerir tækið hagkvæmara í langtímanotkun.
Dúó LED má festa á vegg, hengja upp í loft eða nota frístandandi. Best er að staðsetja flugnabanann í dimmasta hluta rýmisins, fjarri gluggum, loftopum og öðrum björtum svæðum, svo útfjólubláa ljósið frá perunum nýtist sem best.
Helstu kostir
- Verndar allt að 140 m² gegn fleygum skordýrum
- Með 2 x ActaLED perum
- ActaLED pera notar um 70% minni orku en eldri Actalite perur
- Perurnar endast í allt að 3 ár
- Aðeins 10 W orkunotkun
- Má festa á vegg, hengja í loft eða nota frístandandi
- Hentar í verslanir, lagera, verkstæði og önnur rekstrarrými
- Sterk og snyrtileg hönnun úr ryðfríu stáli og ABS plasti
- Tveggja ára ábyrgð á tæki, að undanskildum perum
Tæknilegar upplýsingar
- Verndarsvæði: Allt að 140 m²
- Spenna: 230 V / 50 Hz
- Afl: 10 W
- Perur: 2 x ActaLED
- Stærð: 410 x 110 x 260 mm
- Þyngd: 2,5 kg
- Ytra byrði: Ryðfrítt stál og ABS plast
- Notist innandyra