Fara í efni
Vörunúmer: SHYNL3646

Dekó LED flugnabani | 70 fm

Verðm/vsk
15.190 kr.

Stílhreinn og hagkvæmur LED límflugnabani sem verndar allt að 70 m² gegn flugum og öðrum fleygum skordýrum. Dekó LED er hannaður með útlit og virkni í huga og hentar sérstaklega vel þar sem óskað er eftir snyrtilegri og hljóðlátri lausn, til dæmis á heimilum, í sumarbústöðum, kaffihúsum, veitingastöðum, hótelum og öðrum innanhússrýmum.

Varan er ekki til í netverslun okkar eins og er en getur verið til í öðrum verslunum eða á miðlager okkar. Frekari upplýsingar fást hjá söluráðgjafa í síma 540-1100.
Verðm/vsk
15.190 kr.

Stílhreinn og hagkvæmur LED límflugnabani sem verndar allt að 70 m² gegn flugum og öðrum fleygum skordýrum. Dekó LED er hannaður með útlit og virkni í huga og hentar sérstaklega vel þar sem óskað er eftir snyrtilegri og hljóðlátri lausn, til dæmis á heimilum, í sumarbústöðum, kaffihúsum, veitingastöðum, hótelum og öðrum innanhússrýmum.

Tækið notar eina ActaLED peru sem laðar flugur að tækinu með útfjólubláu ljósi. Flugurnar festast síðan á Actalim límspjaldi inni í tækinu. Nýju ActaLED perurnar nota um 70% minni orku en gömlu Actalite perurnar og endast mun lengur, eða í allt að 3 ár í stað 1 árs. Það lækkar rekstrarkostnað, minnkar viðhald og gerir tækið hagkvæmt í langtímanotkun.

Dekó LED má festa á vegg eða nota frístandandi. Best er að staðsetja flugnabanann í dimmasta hluta rýmisins, fjarri gluggum, loftopum og öðrum björtum svæðum, svo útfjólubláa ljósið frá perunni nýtist sem best.

Fjarlægið hlífðarpappírinn af límspjaldinu áður en tækið er tekið í notkun. Skipta skal um límspjald reglulega þegar það fyllist eða óhreinkast, en að minnsta kosti á 4–6 vikna fresti.

Helstu kostir

  • Verndar allt að 70 m² gegn fleygum skordýrum
  • Stílhrein og snyrtileg hönnun
  • Hentar vel á heimili, í sumarbústaði, kaffihús, veitingastaði og hótel
  • Með 1 x ActaLED peru
  • ActaLED pera notar um 70% minni orku en eldri Actalite perur
  • Peran endist í allt að 3 ár
  • Með Actalim límspjaldi sem fangar flugur inni í tækinu
  • Aðeins 5 W orkunotkun
  • Má festa á vegg eða nota frístandandi
  • Tveggja ára ábyrgð á tæki, að undanskildum peru og límspjaldi

Tæknilegar upplýsingar

  • Verndarsvæði: Allt að 70 m²
  • Spenna: 230 V / 50 Hz
  • Afl: 5 W
  • Pera: 1 x ActaLED
  • Stærð: 240 x 117 x 325 mm
  • Þyngd: 650 g
  • Ytra byrði: Ál
  • Notist innandyra

Tengdar vörur

Límspjöld Actaglu 4 stk

Verðm/vsk
3.890 kr.

vara