Fara í efni
Nýtt
Vörunúmer: SHVYNL3509

Ekó LED flugnabani | 70fm

Verðm/vsk
11.890 kr.

Öflugur og hagkvæmur LED flugnabani sem verndar allt að 70 m² gegn flugum og öðrum fleygum skordýrum. Ekó LED er nettur og meðfærilegur flugnabani sem hentar vel í ýmis innanhússrými þar sem þörf er á einfaldri og áhrifaríkri vörn gegn flugum.

Verðm/vsk
11.890 kr.

Öflugur og hagkvæmur LED flugnabani sem verndar allt að 70 m² gegn flugum og öðrum fleygum skordýrum. Ekó LED er nettur og meðfærilegur flugnabani sem hentar vel í ýmis innanhússrými þar sem þörf er á einfaldri og áhrifaríkri vörn gegn flugum.

Tækið notar eina ActaLED peru sem laðar flugur að tækinu með útfjólubláu ljósi. Nýju ActaLED perurnar nota um 70% minni orku en gömlu Actalite perurnar og endast mun lengur, eða í allt að 3 ár í stað 1 árs. Það lækkar rekstrarkostnað, minnkar viðhald og gerir tækið hagkvæmt í langtímanotkun.

Ekó LED má hengja upp í loft eða nota frístandandi. Best er að staðsetja flugnabanann í dimmasta hluta rýmisins, fjarri gluggum, loftopum og öðrum björtum svæðum, svo útfjólubláa ljósið frá perunni nýtist sem best. Kjörhæð er um 2 metrar frá gólfi.

Athugið að ActaLED pera með öryggishlíf hentar ekki fyrir Ekó LED flugnabanann.

Helstu kostir

  • Verndar allt að 70 m² gegn fleygum skordýrum
  • Með 1 x ActaLED peru
  • ActaLED notar um 70% minni orku en eldri Actalite perur
  • Peran endist í allt að 3 ár
  • Aðeins 5 W orkunotkun
  • Uppfyllir IPX4 kröfur um vatnsvörn
  • Má hengja upp í loft eða nota frístandandi
  • Nett og einföld hönnun
  • Ytra byrði úr ABS plasti
  • Tveggja ára ábyrgð á tæki, að undanskilinni peru

Tæknilegar upplýsingar

  • Verndarsvæði: Allt að 70 m²
  • Spenna: 230 V / 50 Hz
  • Afl: 5 W
  • Pera: 1 x ActaLED
  • Stærð: 147 x 147 x 307 mm
  • Þyngd: 800 g
  • Ytra byrði: ABS plast
  • Notist innandyra

Tengdar vörur


vara