Þú færð Ærblöndur sendar frítt á stöð hjá Samskipum hvert á land sem er eða flutning heim í hlað með Líflandsbílum á viðeigandi dreifingarsvæði skv. áætlun*.
Gildir til 1. desember 2023 og m.v. að pantaður sé minnst heill stórsekkur eða 12 smásekkir.
Fóðraðu til fangs
Ærblöndurnar frá Líflandi innihalda forblöndu sem sérstaklega er löguð að steinefna- og vítamínþörfum sauðfjár.
Ærblanda
Orkuríkt kjarnfóður með 24% próteini. Kjarnfóðrið inniheldur 15% fiskimjöl sem eykur meltanleika próteina. Hentar þar sem þörf er á sterku fengieldi.
Ærblanda LÍF
Hagkvæm blanda með 15% próteini sem leggur til viðbótar prótein og orku og hentar með betri heyjum.
Ærblöndurnar fást í 25 og 500 kg sekkjum.
*Fáðu vöruna senda heim í hlað
Við hjá Líflandi bjóðum upp á reglulegar sendingar á vörum heim í hlað á tilteknum svæðum.
- Borgarfjörður
- Eyjafjörður
- Húnavatnssýsla
- Hreppar
- Skagafjörður
- Suðurland
Sölumenn Líflands finna jafnframt leiðir að fyrirkomulagi á sendingum á öðrum svæðum.
Vinsamlegast hafið samband í gegnum netfangið sala@lifland.is eða í síma 540-1100