Karfan er tóm.
Kalksalt er lítið fjölskyldufyrirtæki á Blönduósi sem framleiðir saltbætiefni fyrir kindur, kýr og hesta.
Kalksalt er eins og nafnið gefur til kynna auðugt af salti, en það inniheldur einnig kalkþörunga sem leggja til kalsíum og magnesíum á lífrænu formi sem nýtist búfénaði vel. Saltið í Kalksalti fellur til við fisksöltun og hefur dregið í sig snefil af nytsamlegum efnum úr fiski, t.d. prótein o.fl.
Hér fer saman hágæða íslensk framleiðsla og endurnýting á salti úr fiskvinnslu.
Kalksalt fæst einnig með hvítlauksextrakti, en hvítlaukurinn getur t.d. haft jákvæð áhrif á kýr þar sem frumutala er farin að hækka í mjólk og á fyrstu stigum júgurbólgu. Hvítlauksfatan getur einnig hentað vel fyrir hesta á hagabeit eða á ferðalögum þar sem hvítlaukurinn hefur fælandi áhrif á flugur. Þú finnur hvítlauksfötuna einnig í vefverslun.