Karfan er tóm.
STI-REN
- Er umhverfisvænt efni sem hefur virkni gegn helstu örveruhópum. Efnið hefur marktæka virkni gagnvart t.d. E.coli, Salmonellu, Campylobacter, Staphylococcus aureus og Streptococcus uberis.
 - PH hlutlaust og hefur ekki tærandi eða leysandi áhrif á innréttingar eða gólfefni, né heldur ertir það viðkvæma húð á húsdýrum.
 - Það er milt fyrir hendur og hefur ekki ertandi áhrif. Ekki er þörf á notkun hanska við meðferð efnisins.
 - Bindur ammoníak og bætir loftgæði til hagsbóta fyrir húsdýr og menn.
 - Dregur í sig raka og sagga og gagnast vel í stíum þar sem raki er viðvarandi.
 - Sótthreinsar og dregur úr smitálagi í gripahúsum sem um leiðir bætir heilbrigði og velferð húsdýra.
 - Má nota hjá öllum húsdýrum og er þarfaþing fyrir alla bændur.
 - Er óskaðlegt dýrum og mönnum.
 
Notkunarleiðbeiningar:
Handfylli (50-100 gr) á m2 einu sinni til tvisvar í viku.
Þar sem mikill raki er eða sjúkdómar eru til staðar er mælt með því að nota STI-REN oftar.